Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2025 til 31. maí 2025
Helstu niðurstöður stjórnendauppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung fjárhagsársins 2025 (Q1) eru:
- Heildarniðurstaða ársfjórðungsins var samkvæmt áætlunum og stendur útgefin afkomuspá fjárhagsársins óbreytt um að EBITDA fjárhagsársins verði 4.800-5.200 millj. kr.
- Vörusala samstæðu Ölgerðarinnar jókst um 3,3% miðað við sama tímabil á síðasta ári.
- EBITDA ársfjórðungsins var 970 millj. kr. og lækkaði um 8% á milli ára.
- Hagnaður eftir skatta var 379 millj. kr. og lækkaði um 103 millj. kr.
- EBITDA Iceland Spring dróst saman um 52 millj.kr. á tímabilinu.
- EBITDA áhrif af Collab útflutningi voru neikvæð um 120 millj. kr. samkvæmt áætlun á tímabilinu.
- Án áhrifa af Iceland Spring og Collab útflutningi var EBITDA vöxtur félagsins 3,7% milli ára sem er umfram áætlanir.
Rekstur Q1 2025 (millj. kr.)
Rekstrarreikningur Q1 2025 | Q1 2025 | Q1 2024 | Breyt. | % Breyt |
Vörusala | 11.609 | 11.233 | 376 | 3% |
Áfengis- og skilagjald | 3.021 | 2.848 | 173 | 6% |
Vörunotkun | 4.369 | 4.319 | 50 | 1% |
Annar framleiðslukostnaður | 239 | 219 | 20 | 9% |
Framlegð | 3.980 | 3.848 | 133 | 3% |
Aðrar tekjur | 5 | 7 | -2 | -23% |
Laun og launatengd gjöld | 1.473 | 1.321 | 152 | 11% |
Sölu- og markaðskostnaður | 898 | 885 | 13 | 2% |
Annar kostnaður | 644 | 593 | 51 | 9% |
EBITDA | 970 | 1.055 | -85 | -8% |
Afskriftir | 300 | 277 | 23 | 8% |
EBIT | 670 | 778 | -108 | -14% |
Fjármagnsliðir og áhrif hlutdeildarfélaga | 198 | 197 | 1 | 1% |
Hagnaður fyrir skatta | 472 | 581 | -110 | -19% |
Tekjuskattur | 93 | 100 | -7 | -7% |
Hagnaður e skatta | 379 | 482 | -103 | -21% |
Vörusala og framlegð hækkuðu um 3% milli ára. Rúmlega 10% aukning var í sölu til hótela og veitingastaða (Horeca) á ársfjórðungnum. Sala til Vínbúðarinnar jókst um 6% milli ára sem má rekja til áframhaldandi hlutdeildaraukningar í bjór.
Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 11% milli ára. Stöðugildum fjölgaði um 23 milli ára og má skýra það með auknum umsvifum í snyrtivöruhluta Danól ásamt innvistun á hluta af vöruhúsastarfsemi og kaffivélaþjónustu. Ölgerðin rekur nú tvö vöruhús – hið nýja hóf starfsemi í febrúar, er að Köllunarklettsvegi 6 og þar eru 14 stöðugildi.
Sölu- og markaðskostnaður hækkaði um 2% milli ára og annar kostnaður hækkaði um 9%. Samtals hækkaði rekstrarkostnaður um 4% milli ára.
Fjármagnsliðir stóðu nokkurn veginn í stað á milli ára. Aukin skuldsetning og lægri vextir vega hvort annað upp að mestu leyti.
Efnahagur 31.05.2025 (millj. kr.)
Efnahagur | 31.5.2025 | 28.2.2025 | Breyt. | % Breyt |
Eignir | 35.388 | 33.184 | 2.204 | 7% |
Eigið fé | 16.735 | 16.375 | 360 | 2% |
Eiginfjárhlutfall | 47,3% | 49,3% | -2,1 | |
Vaxtaberandi skuldir og leigusk. | 9.529 | 8.719 | 810 | 9% |
Handbært fé | 692 | 1.273 | -582 | -46% |
Nettó vaxtaberandi skuldir og leigusk. | 8.837 | 7.445 | 1.392 | 19% |
EBITDA sl. 12 mán | 4.955 | 5.040 | -85 | -2% |
NIDB/EBITDA sl. 12 mán | 1,78 | 1,48 | 0,3 |
Nettó vaxtaberandi skuldir, að viðbættri húsaleiguskuldbindingu, voru 8.837 millj. kr. í lok fyrsta ársfjórðungs. Það er aukning um 1.392 millj. kr. milli ára. Greiðsla fyrir kaup á Ankra ehf. fór fram á tímabilinu sem birtist í uppgjörinu. Þá bar síðasta dag ársfjórðungsins upp á helgidag og gjalddagi hárra viðskiptakrafna eins og hjá ÁTVR komu því til greiðslu í byrjun júní. Jafnframt fór launagreiðsla fyrir maí fram á tímabilinu í stað fyrsta dag næsta mánaðar eins og venja er. Áhrifin af þessum þáttum voru yfir 1 ma. kr. sem þarf að hafa í huga þegar handbært fé og skuldastaða eru skoðaðar og bornar saman við uppgjör, þar sem þessara áhrifa gætir ekki.
Í maí voru gefnir út nýir hlutir í Ölgerðinni fyrir 124 millj. kr. vegna kaupréttarsamninga.
Meðalvextir skulda samstæðunnar í íslenskum krónum voru 9,4% í lok fyrsta ársfjórðungs.
Fjárfestingar
Vinna við stækkun vöruhúss félagsins við Köllunarklettsveg 6 er á áætlun en með henni tvöfaldast húsið að stærð og gera stjórnendur ráð fyrir að það verði tekin í notkun undir lok núverandi fjárhagsárs.
Fjárfestingar í öðrum varanlegum rekstrarfjármunum námu 244 millj. kr á tímabilinu sem er heldur minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Áfram er gert ráð fyrir fjárfestingu í hefðbundnum varanlegum rekstrarfjármunum fyrir um 1.526 millj. kr. á fjárhagsárinu. Stærsta einstaka fjárfestingin á tímabilinu var endurnýjun á loftræsingu í framleiðsluhluta að Grjóthálsi 9.
Eins og áður hefur komið fram var gengið frá kaupum á Ankra ehf. í apríl. Umsamið heildarvirði félagsins vegna kaupanna var 641 millj. kr.
Heildarvirði | 641 millj. kr. |
Handbært fé og veltufjármunir | 164 millj. kr. |
Greiðsla til seljenda | 804 millj. kr. |
Kaup félagsins á Gæðabakstri bíða samþykktar Samkeppniseftirlitsins og áreiðanleikakönnun á Kjarnavörum stendur enn yfir. Ekkert hefur komið fram í áreiðanleikakönnunum sem hefur áhrif á viðskiptin. Ferlið hefur tekið lengri tíma en væntingar stóðu til. Áhrifa reksturs félaganna mun því ekki gæta í samstæðu Ölgerðarinnar fyrr en á þriðja eða fjórða ársfjórðungi fjárhagsársins.
Aðrar fréttir í starfseminni:
Rekstur Iceland Spring var undir áætlunum stjórnenda og má rekja það annars vegar til áhrifa innflutningstolla sem setja mark sitt á eftirspurn í Bandaríkjunum, auk þess sem gengi dollars gagnvart íslensku krónunni munu hafa áhrif á rekstraruppgjör í íslenskum krónum.
Collab útflutningur gengur samkvæmt áætlun. Í Danmörku er varan seld í um 600 verslunum auk annarra minni útsölustaða svo sem mötuneytum og söluturnum. Veltuhraði í verslunum er í samræmi við væntingar og ágætur stígandi er í sölu.
Sala í Þýskalandi hófst í byrjun júní og er varan nú seld í um 700 verslunum í norður Þýskalandi – einkum í Hamborg og nágrenni. Áætlað er að í haust verði Collab fáanlegt í um 1500 verslunum. Of snemmt er að segja til um söluhorfur en fyrstu viðtökur eru góðar.
Deiliskipulag á Hólmsheiði hefur ekki öðlast gildi og því liggur ekki enn fyrir hvenær framkvæmdir á svæðinu hefjast.
Vöruþróun hefur verið blómleg að vanda. Kristall+ var settur á markað á tímabilinu og eru viðtökur góðar. Boli X heldur áfram að sækja í sig veðrið og var með 2,7% markaðshlutdeild á tímabilinu.
Vörusala í júní er rúmlega 10% meiri en á sama tímabili í fyrra, sem er í takt við áætlanir stjórnenda, enda var sala í júní 2024 minni en eðlilegt gat talist.
Sala á snyrtivörum jókst verulega á tímabilinu og ljóst að tilkoma Luxe hluta L‘Oreal styrkir snyrtivöruhluta Danól verulega.
Þá setti Ölgerðin Kærleikskristal á markað í byrjun júní, en allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru, sem mun fjármagna húsnæði Bryndísarhlíðar, miðstöðvar fyrir börn sem mátt hafa þola ofbeldi.
Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. mars 2025 – 31. ágúst 2025 (6 mánaða uppgjör) verður birtur 9. október 2025 og verður kynningarfundur um uppgjörið haldinn kl. 16:30 sama dag.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, í síma 665-8010
Jón Þorsteinn Oddleifsson, fjármálastjóri í síma 820-6491
Viðhengi
