Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 2025 - 31. ágúst 2025
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. mun birta árshlutauppgjör félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 31. ágúst 2025, eftir lokun markaða fimmtudaginn 9. október 2025.
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 9. október 2025, klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt.
