OLGERD OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

Ölgerðin hf.: Uppfærð afkomuspá

Ölgerðin hf.: Uppfærð afkomuspá

Ölgerðin hefur uppfært afkomuspá sína fyrir fjárhagsárið 2022 í kjölfar þess að drög að uppgjöri fyrirtækisins fyrstu 6 mánuði fjárhagsársins liggja fyrir.

Rekja má breytinguna fyrst og fremst til tveggja þátta. Annars vegar hefur sala á vörum fyrirtækisins á hótelum og veitingastöðum aukist, ekki síst vegna umtalsverðrar fjölgunar ferðamanna. Hins vegar er hlutdeild Ölgerðarinnar í bjórsölu hjá ÁTVR stærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Gera má ráð fyrir því að EBITDA afkoma félagsins á fyrri helmingi fjárhagsársins verði um 2,5 ma. kr. en til samanburðar var EBITDA afkoma 1,9 ma. kr. á sama tíma árið 2021. Í því ljósi og með hliðsjón af væntingum fyrir síðari helming fjárhagsársins hefur afkomuspá félagsins fyrir fjárhagsárið 2022 verið hækkuð og er nú gert ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Ölgerðarinnar verði á bilinu 4,1 – 4,4 ma. kr.

Það skal þó áréttað að rekstur félagsins er árstíðabundinn og sveiflukenndur og er ný afkomuspá því háð áhættu- og óvissuþáttum sem geta þýtt að afkoman verði frábrugðin því sem greint er frá í þessari spá.

Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. mars 2022 – 31. ágúst 2022 verður birtur 11. október næstkomandi og verður kynningarfundur fyrir hluthafa haldinn sama dag kl. 16:30 í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar hf.,



EN
27/09/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – J...

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni Andri Þór Guðmundsson, sem sinnt hefur starfi forstjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., (nú Bera hf.) í rúmlega tvo áratugi, hefur ákveðið að skipta um hlutverk, láta af störfum sem forstjóri, bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins.  Þá hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Bera hf. (áður Ölgerðin) mun birta tilkynningar,  árshluta- og ársuppgjör og halda aðalfund í samræmi við það sem hér segir: EfniDags. Birting ársreiknings fjárhagsársins 2025 sem lýkur 28. febrúar 2026 (Tímabilið 1. mars - 28. febrúar)  16. apríl 2026 Aðalfundur 2026  13. maí 2026   Afkomutilkynning   (Tímabilið 1. mars - 31. maí)  18. júní 2026 Birting árshlutareiknings fyrstu 6 mánaða fjárhagsársins 2026   (Tímabilið 1. mars - 31. ágúst)   8. október 2026 Afkomutilkynning  (Tímabilið 1. mars - 30. nóvember)  17. desember 2026  Birting ársreiknings fjárhagsá...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febr...

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febrúar 2026 Hluthafafundur í Ölgerðinni Egill Skallagrímsson hf., var haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11, Reykjavík, hinn 26. febrúar 2026, kl. 16:00. Samþykkt var tillaga stjórnar um að breyta nafni félagsins í Bera hf., og að rekstur félagsins sem tengist sölu, framleiðslu og dreifingu á drykkjarvörum yrði framseldur til dótturfélags félagsins, ÖES ehf., kt. 680126-0110. Fyrrnefnd tillaga fól í sér eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins: Ákvæði 1. gr. breytist og hljóðar nú svo: “Félagið er hlu...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831 Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD260831 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,80% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 25. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verða teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra. Grunnlýsing og viðauk...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026 Hluthafafundur Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf. verður haldinn þann 26. febrúar 2026, kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík. Fundarboð með dagskrá er að finna í meðfylgjandi viðhengi. Endanleg dagskrá fundarins, tillögur stjórnar og önnur skjöl sem lögð verða fyrir hluthafafundinn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins, , sem og í höfuðstöðvum félagsins. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch