ORIGO Origo Hf

Origo hf. - Tilkynning vegna forstjórabreytingar í Tempo ehf.

Origo hf. - Tilkynning vegna forstjórabreytingar í Tempo ehf.

Reykjavík, 7. janúar 2020

Gary Jackson hefur látið af störfum sem forstjóri Tempo ehf. og Chris Porch ráðinn tímabundið í hans stað. Tempo er 45% hlutdeildarfélag Origo og 55% í eigu Diversis Capital.

Chris hefur áratugareynslu af rekstri hugbúnaðarfyrirtækja, sem stofnandi, stjórnandi og stjórnarformaður. Hann hefur að undanförnu starfað sem stjórnendatengiliður (operating partner) Diversis Capital hjá Tempo, þar sem hann hefur stutt við stjórnendateymið í stefnumótun og áætlunargerð. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri Tempo verði ráðinn eins fljótt og auðið er en þangað til mun Chris vinna með öflugu stjórnendateymi að áframhaldandi kröftugum vexti Tempo. Nánari upplýsingar um Chris má finna hér: .

Finnur Oddsson, forstjóri Origo: “Breytingar á forystu Tempo er liður í að stilla betur saman áherslur stjórnar og stjórnenda og byggja um leið sterkt leiðtogateymi til framtíðar. Rekstur Tempo gekk vel á síðasta ári, tekjuvöxtur og afkoma voru umfram væntingar og horfur eru mjög góðar.”  Nánari upplýsingar verður að finna í uppgjöri Origo hf. í lok þessa mánaðar.

ORIGO HF. / TEMPO EHF.

Um Tempo ehf: Tempo er leiðandi í þróun lausna fyrir verkefnastýringu og tímaskráningu og þjónar nú 13 þúsund viðskiptavinum í yfir 120 löndum.  Hjá fyrirtækinu starfa um 130 sérfræðingar, á Íslandi, í Kanada og í Bandaríkjunum.

Origo. (NASDAQ OMX: Origo.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá samstæðunni starfa um 550 manns. Dótturfélög Origo eru Sense ehf. og Applicon AB. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á

Til athugunar fyrir fjárfesta:

Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.

EN
07/01/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Origo Hf

 PRESS RELEASE

Origo hf. - Viðskipti stjórnenda -

Origo hf. - Viðskipti stjórnenda - Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti stjórnenda. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Origo hf. Uppgjör 3F 2020: 16% tekjuvöxtur á fyrstu níu mánuðum ársins

Origo hf. Uppgjör 3F 2020: 16% tekjuvöxtur á fyrstu níu mánuðum ársins Reykjavík 21. október 2020 Helstu fjárhagsupplýsingar:       Helstu fréttir úr starfsemi:-Sala á vöru og þjónustu nam 3.983 mkr á þriðja ársfjórðungi 2020 (15,0% tekjuvöxtur frá F3 2019) og 12.156 mkr fyrstu níu mánuði ársins 2020 (15,7% tekjuvöxtur frá 9M 2019) [F3 2019: 3.463 mkr, 9M 2019: 10.509 mkr]          Tekjur allra sviða hafa aukist og afkoma batnað. -Framlegð 1.000 mkr(25,1%) á 3F og 2.984 mkr(24,5%) á 9M 2020[F3 2020:747mkr(21,6%), 9M 2019:2.520 mkr(24,0%)] H...

 PRESS RELEASE

Origo hf. – Fjárfestakynning 22. október 2020 kl. 08:30 - Rafrænn kynn...

Origo hf. – Fjárfestakynning 22. október 2020 kl. 08:30 - Rafrænn kynningarfundur - Reykjavík, 15 október 2020 Origo hf. heldur rafrænan kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs 3. ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 22 .október næstkomandi.  Á fundinum munu Jón Björnsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningin hefst kl. 08:30 og fer fram í gegnum fjarfundabúnað, en einnig verður hægt að fylgjast með netstreymi af fundinum. Skráning fer fram hér:   ...

 PRESS RELEASE

Origo hf. - Breytingar á framkvæmdarstjórn Applicon AB

Origo hf. - Breytingar á framkvæmdarstjórn Applicon AB Reykjavík, 30.september 2020 Victoria Sundberg hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri hjá Applicon AB í Svíþjóð, dótturfélags Origo hf. Victoria hefur víðtæka reynslu á sviði upplýsingatækni fyrir fjármálastofnanir. Hún hefur m.a leitt svið Greiðslu og Kjarnakerfa  fyrir fjármálastofnanir hjá Crosskey Banking Solutions AB LTD. Victoria mun hefja störf á fjórða ársfjórðungi 2020 og  Hakon Nyberg mun áfram leiða félagið tímabundið þangað til hún hefur störf. Ingimar Bjarnason, Stjórnarformaður Applicon AB: „Reynsla Victor...

 PRESS RELEASE

Origo hf. Fjárfestakynning 1H 2020 - 30.06.2020

Origo hf. Fjárfestakynning 1H 2020 - 30.06.2020 Reykjavík 27. ágúst 2020 Sjá meðfylgjandi viðhengi. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch