ORIGO Origo Hf

Origo hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020 - Ágætur fjórðungur en áhrifa Covid-19 farið að gæta í rekstri

Origo hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020 - Ágætur fjórðungur en áhrifa Covid-19 farið að gæta í rekstri

Reykjavík, 29. apríl 2020 - Origo kynnti í dag uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020

Heildarhagnaður 425 mkr og EBITDA 237 mkr

Helstu upplýsingar:

• Sala á vöru og þjónustu nam 4.277 mkr á fyrsta ársfjórðungi 2020 (20,4% tekjuvöxtur frá F1 2019) [F1 2019: 3.553 mkr]

• Framlegð nam 1.050 mkr (24,6%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2019: 25,9%] 

• EBITDA nam 237 mkr (5,5%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2019: 237 mkr (6,7%)]

• Leiðrétt EBITDA með tilliti til niðurfærslu á viðskiptakröfum nemur 274 mkr og hækkar um 16% frá fyrra ári

• Hrein fjármagnsgjöld námu 126 mkr á fyrsta ársfjórðungi [F1 2019: 43 mkr]

• Þýðingarmunur vegna starfsemi dóttur- og hlutdeildarfélaga nam 460 mkr á fyrsta ársfjórðungi [F1 2019: 149 mkr]

• Heildarhagnaður nam 425 mkr á fyrsta ársfjórðungi [F1 2019: 213 mkr]

• Eiginfjárhlutfall er 58,7% (var 57,1% í lok árs 2019) og eigið fé 7,2 makr 

• Veltufjárhlutfall er 1,32 (var 1,34 í lok árs 2019)



Finnur Oddsson, forstjóri:

„Vegna heimsfaraldurs Covid-19 var lagt í umfangsmiklar aðgerðir á fyrsta ársfjórðungi til að standa vörð um öryggi og heilsu starfsfólks, tryggja samfellu í rekstri Origo og þjónustu við viðskiptavini. Stærstur hluti starfsfólks Origo hefur undanfarnar vikur sinnt vinnu sinni að heiman og með góðum undirbúningi, dugnaði og nýtingu upplýsingatæknilausna hefur tekist að halda úti hefðbundinni starfsemi án frávika í rekstri. Það er ánægjulegt að sjá hvað þessi vinna hefur gengið vel og sérstaklega að vita til þess að með stuðningi tæknilausna frá Origo hefur fjöldi fyrirtækja náð að gera slíkt hið sama, laga starfsemi að gerbreyttum aðstæðum og viðhalda þjónustu við sína viðskiptavini.  Það er fátt sem veitir okkur meiri ánægju.

Þrátt fyrir töluverða röskun á daglegri starfsemi vegna Covid-19 gekk rekstur Origo á fjórðungnum vel. Tekjur Origo numu 4.277 mkr og jukust um 20% miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA var 237 mkr en þar höfum við tekið tillit til niðurfærslu viðskiptakrafna vegna mikillar efnahagslegrar óvissu sem stafar af veirufaraldrinum.  Heildarhagnaður var 425 mkr og tvöfaldast á milli ára, en þessi ágæta niðurstaða er að stórum hluta til komin vegna gengishreyfinga sem hafa jákvæð áhrif á þýðingarmun vegna starfsemi dóttur- og hlutdeildarfélaga, einkum Tempo. Fjárhagsstaða Origo er því áfram mjög sterk og félagið vel í stakk búið til að kljást við rekstraróvissu og mögulega ágjöf á næstu mánuðum og misserum.

Almennt má segja að rekstur Origo hafi þróast með jákvæðum hætti á fjórðungnum. Kröftugan tekjuvöxt má að stórum hluta rekja til aukinnar eftirspurnar eftir notendabúnaði til fjarvinnu, tölvum og fjarfundarlausnum og alger viðsnúningur hefur orðið í afkomu á þessu sviði. Að sama skapi hefur afkoma af hýsingar- og rekstrarþjónustu batnað umtalsvert frá fyrra ári og fjárfesting í þekkingu á sviði skýja- og öryggislausna og sjálfvirknivæðingar ferla hefur skilað nýjum tekjum.  Þessi ágæta rekstrarniðurstaða á sviðum Notenda- og Þjónustulausna er afrakstur mikillar vinnu við hagræðingu og einföldun á rekstri beggja eininga á síðasta ári og í byrjun þessa.

Hugbúnaði og tengdri þjónustu heldur áfram að vaxa fiskur um hrygg, þó með þeirri undantekningu að vegna áhrifa Covid-19 á ferðaþjónustu hefur eðlilega orðið nokkuð bakslag í sölu og þróun á ferðatengdum lausnum.  Það vegur hins vegar á móti að eftirspurn eftir hugbúnaðarlausnum fyrir heilbrigðisþjónustu hefur líklega aldrei verið meiri og mjög ánægjulegt að á síðustu vikum hefur Origo leikið beint hlutverk í baráttunni við veiruna með þróun á nýrri virkni fyrir Heilsuvera.is, eins og myndsamtöl, birtingu niðurstaðna úr veiruskimun eða stýringu á lyfjaávísunum.  Svipaða sögu er að segja af sölu og ráðgjöf á viðskiptahugbúnaði, tekjur halda áfram að aukast, æ stærra hlutfall í mánaðarlegri áskrift og afkoma var góð.

Það er öllum ljóst að mikil óvissa ríkir um þróun efnahagslífs á Íslandi og um leið um horfur í rekstri flestra fyrirtækja. Origo er þar engin undantekning og fyrir liggur að áhrif veirufaraldursins á okkar rekstur verða töluverð, neikvæð á sumum sviðum en jákvæð á öðrum.  Sterk staða félagsins, sérstaklega fjárhagsleg, gerir okkur kleift að fást við óvissuástand og ágjöf sem er á næsta leiti.  Við horfum hinsvegar til þess að upplýsingatækni er ein af þeim undirstöðum sem heldur íslensku samfélagi eins vel virkandi og raun ber vitni og að vegna faraldursins mun vægi upplýsingatækni og stafrænna lausna aukast frekar en hitt.  Þar er Origo í lykilstöðu til að nýta tækifærin og horfum við því hóflega bjartsýn til framtíðar.“



Viðhengi

EN
29/04/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Origo Hf

 PRESS RELEASE

Origo hf. - Viðskipti stjórnenda -

Origo hf. - Viðskipti stjórnenda - Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti stjórnenda. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Origo hf. Uppgjör 3F 2020: 16% tekjuvöxtur á fyrstu níu mánuðum ársins

Origo hf. Uppgjör 3F 2020: 16% tekjuvöxtur á fyrstu níu mánuðum ársins Reykjavík 21. október 2020 Helstu fjárhagsupplýsingar:       Helstu fréttir úr starfsemi:-Sala á vöru og þjónustu nam 3.983 mkr á þriðja ársfjórðungi 2020 (15,0% tekjuvöxtur frá F3 2019) og 12.156 mkr fyrstu níu mánuði ársins 2020 (15,7% tekjuvöxtur frá 9M 2019) [F3 2019: 3.463 mkr, 9M 2019: 10.509 mkr]          Tekjur allra sviða hafa aukist og afkoma batnað. -Framlegð 1.000 mkr(25,1%) á 3F og 2.984 mkr(24,5%) á 9M 2020[F3 2020:747mkr(21,6%), 9M 2019:2.520 mkr(24,0%)] H...

 PRESS RELEASE

Origo hf. – Fjárfestakynning 22. október 2020 kl. 08:30 - Rafrænn kynn...

Origo hf. – Fjárfestakynning 22. október 2020 kl. 08:30 - Rafrænn kynningarfundur - Reykjavík, 15 október 2020 Origo hf. heldur rafrænan kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs 3. ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 22 .október næstkomandi.  Á fundinum munu Jón Björnsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningin hefst kl. 08:30 og fer fram í gegnum fjarfundabúnað, en einnig verður hægt að fylgjast með netstreymi af fundinum. Skráning fer fram hér:   ...

 PRESS RELEASE

Origo hf. - Breytingar á framkvæmdarstjórn Applicon AB

Origo hf. - Breytingar á framkvæmdarstjórn Applicon AB Reykjavík, 30.september 2020 Victoria Sundberg hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri hjá Applicon AB í Svíþjóð, dótturfélags Origo hf. Victoria hefur víðtæka reynslu á sviði upplýsingatækni fyrir fjármálastofnanir. Hún hefur m.a leitt svið Greiðslu og Kjarnakerfa  fyrir fjármálastofnanir hjá Crosskey Banking Solutions AB LTD. Victoria mun hefja störf á fjórða ársfjórðungi 2020 og  Hakon Nyberg mun áfram leiða félagið tímabundið þangað til hún hefur störf. Ingimar Bjarnason, Stjórnarformaður Applicon AB: „Reynsla Victor...

 PRESS RELEASE

Origo hf. Fjárfestakynning 1H 2020 - 30.06.2020

Origo hf. Fjárfestakynning 1H 2020 - 30.06.2020 Reykjavík 27. ágúst 2020 Sjá meðfylgjandi viðhengi. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch