REGINN Reginn hf

Heimar hf.: Kaup Heima á Grósku frágengin

Heimar hf.: Kaup Heima á Grósku frágengin

Kaup Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) á öllu hlutafé Grósku ehf. („Gróska“) og Gróðurhússins ehf. („Gróðurhúsið“) („viðskiptin“), sem tilkynnt var um 23. apríl sl., eru nú frágengin.  

Gróska á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, samfélag nýsköpunar og eina stærstu og metnaðarfyllstu skrifstofubyggingu landsins. Fasteignin er um 18.600 m2 að stærð ásamt 6.200 m2 bílakjallara með 205 stæðum, eða samtals um 24.800 m2. Gróðurhúsið rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni. Eignin er BREEAM vottuð en við kaupin hækkar hlutfall vottaðra eigna Heima úr 38,9% í 41,1%

Meðal leigutaka í Grósku eru leikjaframleiðandinn CCP, bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið NetApp, Vísindagarðar Háskóla Íslands, World Class, Íslandsstofa og fjölmörg önnur fyrirtæki sem eru í fararbroddi íslenskrar nýsköpunar. Samsetning leigutaka stuðlar að fjölbreyttu mannlífi í húsinu sem rímar vel við einkennisorð Heima um að „lifa, leika, starfa“. 

Kaupverðið var greitt, eins og áður hefur verið tilkynnt um, með útgáfu og afhendingu 258 milljón nýrra hluta í Heimum. Hlutirnir hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq og afhentir seljendum Grósku og Gróðurhússins.  

Sem liður í viðskiptunum mun fjárfestingarfélagið Omega ehf. kaupa hlut Björgólfs Thors Björgólfssonar og verður eftir kaupin stærsti hluthafi Heima með liðlega 12,5% hlut.  

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima:
 

„Gróska er einstök bygging sem státar af öflugu samfélagi nýsköpunar og skapandi greina og sómir sér afar vel í okkar eignasafni. Staðsetningin á Háskólasvæðinu, stærð og hönnun hússins, auk nálægðar við miðborgina, mun að okkar mati styðja við stöðuga eftirspurn leigutaka eftir skrifstofum og öðru atvinnuhúsnæði í Grósku til langrar framtíðar. Við höfum á undanförnum misserum selt stakar eignir úr eignasafni Heima í samræmi við stefnu okkar um að eiga og reka sterka kjarna með fjölbreytta þjónustu í grennd við íbúðabyggð og góðar samgöngutengingar. Kaupin á Grósku og Gróðurhúsinu eru mikilvægt skref á þeirri vegferð og styrkja bæði félagið og eignasafn okkar.“ 

Birgir Már Ragnarsson, stjórnarformaður Grósku og meðeigandi Omega: 

„Salan á Grósku til Heima er ánægjuleg og markar tímamót í nærri tíu ára langri sögu uppbyggingar hugmyndaseturs í Vatnsmýrinni. Sú saga hófst þegar við sem stærstu eigendur CCP og í samstarfi við forstjóra félagsins, vildum byggja höfuðstöðvar sem hæfðu starfsemi þess. Í samstarfi við CCP og Reykjavíkurborg völdum við þessa staðsetningu, ekki síst vegna tenginga við vísindasamfélagið og háskólann.  Eftir að hafa unnið víða um heim og fjárfest í nýsköpun um langt skeið vaknaði sú hugmynd snemma að byggja upp þekkingarklasa sem myndi jafnast á við það besta sem þekkist á „campus-um“ tæknifyrirtækja erlendis.  Það hefur svo sannarlega tekist. Fyrir okkur sem komum að uppbyggingu hússins fylgir því líka mikil ánægja og stolt hversu mörg fyrirtæki sem náð hafa stórkostlegum árangri hafa stigið sín fyrstu skref í Grósku.  Þetta sýnir að ætlunarverkið tókst, að húsið yrði gróðrarstöð skapandi iðnaðar og verðmætasköpunar á grundvelli hugvits á íslandi. Svona metnaðarfullt hús verðskuldar öflugan eiganda sem hefur burði til að halda þróuninni áfram. Heimar eru öflugasta fasteignafélag landsins með flotta framtíðarsýn og í mínum huga rétti aðilinn til að taka við rekstri Grósku. Framtíðin er björt”  

LEX var ráðgjafi Heima í viðskiptunum og LOGOS ráðgjafi hluthafa Grósku og Gróðurhússins.  

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001. 





EN
13/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reginn hf

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) has completed an offering of the bond series HEIMAR50 GB.  HEIMAR50 GB is a green, inflation-linked bond series secured by the company’s general security arrangement. The series matures on 20 August 2050, with principal repayments following a 30-year annuity schedule until maturity. Interest and principal payments are made quarterly, i.e. in February, May, August, and November each year. The bond carries a nominal interest rate of 2.477%, and the current outstanding nominal amount is ISK 14,420 million.  Bid...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) hefur lokið útboði á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 20. ágúst 2050 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) fram til lokagjalddaga. Greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 2,477% og núverandi stærð er 14.420 m.kr að nafnverði.   Alls ...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf. Enclosed is a major shareholder announcement from Omega fasteignir ehf. Attachment

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Omega fasteignum ehf. þar sem farið er yfir 10% eignarhlut í Heimum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Acquisition of Gróska Completed

Heimar hf.: Acquisition of Gróska Completed The acquisition by Heimar hf. ("Heimar" or the "Company") of all shares in Gróska ehf. (“Gróska”) and Gróðurhúsið ehf. (“Gróðurhúsið”) (the “Transaction”), which was initially announced on 23 April this year, has now been completed.  Gróska owns the property Gróska, located at Bjargargata 1, 102 Reykjavík, an innovation hub and one of Iceland’s largest and most ambitious office buildings. The property comprises approximately 18,600 square meters of floor area and a 6,200 square meter underground car park with 205 spaces, totaling approximately 2...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch