Heimar hf.: Lækkun hlutafjár
Á aðalfundi Heima hf. þann 11. mars 2025 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 45.645.833 að nafnvirði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkunina verður hlutafé félagsins samtals kr. 1.763.901.137 að nafnvirði.
Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd miðvikudaginn 26. mars 2025.
Að öðru leyti er vísað til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 11. mars 2025 þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.
