Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 19 keypti Heimar hf. („Heimar“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 108.200.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
5.5.2025 | 15:11 | 1.000.000 | 36 | 36.000.000 |
7.5.2025 | 14:42 | 1.000.000 | 36 | 36.000.000 |
8.5.2025 | 11:24 | 1.000.000 | 36,2 | 36.200.000 |
Samtals | 3.000.000 | 108.200.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 8. apríl 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar átti 7.995.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 10.995.000 hluti, eða um 0,62% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 390.034.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála –
