REGINN Reginn hf

Reginn hf.: Niðurstöður forgangsréttarútboðs í Reginn hf.

Reginn hf.: Niðurstöður forgangsréttarútboðs í Reginn hf.



Forgangsréttarútboð Regins hf. á 40.000.000 nýjum hlutum lauk í dag kl 17:00. Forgangsréttarhöfum voru boðnir 40.000.000 nýir hlutir til kaups á genginu 15,0 á hvern hlut. Útboðið var undanþegið lýsingu en skilmálar útboðsins voru birtir þann 14. september sl. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. var umsjónaraðili útboðsins.

Rúmlega fjórföld eftirspurn var eftir nýjum hlutum frá forgangsréttarhöfum eða alls 171.132.236 hlutum. Alls var úthlutað 40.000.000 nýjum hlutum til forgangsréttarhafa eða samtals kr. 600.000.000 að heildarvirði en þar er um að ræða áskrift að öllum þeim nýju hlutum sem boðnir voru í útboðinu. Fjárfestum verður að öðru leyti tilkynnt um úthlutanir í útboðinu á morgun, þann 29. september og verður úthlutun hvers og eins aðgengileg á áskriftarvef útboðsins á vef Íslandsbanka á slóðinni https://.

Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 1. október n.k. Áætlað er að nýir hlutir verði afhentir og teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 2. október næstkomandi, eða eins fljótt og auðið er eftir útgáfu hlutabréfa hjá fyrirtækjaskrá Skattsins.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Reginn fyrir útboðið er 1.783.152.097 og verða 1.823.152.097 eftir útgáfu nýrra hluta.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri Regins hf. - Sími: 512 8900 / 899 6262

EN
28/09/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reginn hf

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Expansion of the Bond Series HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) has completed an offering of the bond series HEIMAR50 GB.  HEIMAR50 GB is a green, inflation-linked bond series secured by the company’s general security arrangement. The series matures on 20 August 2050, with principal repayments following a 30-year annuity schedule until maturity. Interest and principal payments are made quarterly, i.e. in February, May, August, and November each year. The bond carries a nominal interest rate of 2.477%, and the current outstanding nominal amount is ISK 14,420 million.  Bid...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB 

Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  Heimar hf. (Nasdaq: HEIMAR) hefur lokið útboði á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB  HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður flokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 20. ágúst 2050 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) fram til lokagjalddaga. Greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember ár hvert. Nafnvextir bréfsins eru 2,477% og núverandi stærð er 14.420 m.kr að nafnverði.   Alls ...

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Major Shareholder Announcement - Omega fasteignir ehf. Enclosed is a major shareholder announcement from Omega fasteignir ehf. Attachment

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf.

Heimar hf.: Flöggun - Omega fasteignir ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Omega fasteignum ehf. þar sem farið er yfir 10% eignarhlut í Heimum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Heimar hf.: Kaup Heima á Grósku frágengin

Heimar hf.: Kaup Heima á Grósku frágengin Kaup Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) á öllu hlutafé Grósku ehf. („Gróska“) og Gróðurhússins ehf. („Gróðurhúsið“) („viðskiptin“), sem tilkynnt var um 23. apríl sl., eru nú frágengin.   Gróska á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, samfélag nýsköpunar og eina stærstu og metnaðarfyllstu skrifstofubyggingu landsins. Fasteignin er um 18.600 m2 að stærð ásamt 6.200 m2 bílakjallara með 205 stæðum, eða samtals um 24.800 m2. Gróðurhúsið rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni. Eignin er BREEAM vottuð en við kaupin hækkar hlutfall v...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch