REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Breytingar á viðskiptavakt

REITIR: Breytingar á viðskiptavakt

Reitir hafa gengið til samninga við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningum félagsins við Landsbankann hf. og Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt hefur verið sagt upp.

Samningurinn við Kviku kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi kauphallarinnar áður en markaðurinn er opnaður. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Kviku.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða, skal vera að lágmarki kr. 15.000.000 að markaðsvirði, á gengi sem Kvika ákveður í hvert skipti. Kviku er heimilt en ekki skylt að bjóða til kaups og/eða sölu hærri fjárhæðir að markaðsvirði. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða skal vera 1,5%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Kvika skuldbindur sig til að eiga viðskipti með dag hvern skal samsvara kr. 75.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 3. febrúar 2020. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Eftir að þessar breytingar koma til framkvæmda standa því Arion banki hf. og Kvika banki hf. að viðskiptavakt með bréf Reita.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.

EN
31/01/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026 Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 25. mars 2026 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Drög að dagskrá fundarins: Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfumTillaga um lækkun hlutafjár til jöfnun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch