REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....