REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 12

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 12

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 12. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 150.000 eigin hluti að kaupverði 12.562.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
21/3/2310:33150.00083,7512.562.50021.902.695
Samtals 150.000 12.562.50021.902.695



Reitir hafa nú keypt samtals 4.402.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 73,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 369.869.643 kr. sem samsvarar 67,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 21.902.695 eigin hluti, eða um 2,87% af heildarhlutafé félagsins. Af þeirri fjárhæð voru 17.500.000 hlutir keyptir undir endurkaupaáætlunum síðasta árs en þeim lauk þann 19. desember sl. Aðalfundur félagsins þann 8. mars sl. samþykkti að lækka útgefið hlutafé félagsins um þá fjárhæð og er skráning hennar nú í lögformlegu ferli. Að teknu tilliti til lækkunarinnar væru hlutir í eigu Reita nú 4.402.695 hlutir eða 0,59% af hlutafé félagsins eins og það verður skráð eftir lækkunina.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á  .











EN
27/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 25. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt, til að setja upp formlega endurkaupaáætlun og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum undir kaupréttaráætlun félagsins. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða til...

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - LSR

REITIR: Flöggun - LSR Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf.

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brimgörðum ehf. Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf.

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Íslandsbanka Viðhengi

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 750,000 shares at 116.000ISK and the significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch