REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 27 og 28
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 27. viku voru engin viðskipti. Í 28. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 900.000 eigin hluti að kaupverði 103.900.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
7/7/25 | 10:00 | 100,000 | 116.00 | 11,600,000 | 4,300,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
8/7/25 | 13:58 | 100,000 | 115.50 | 11,550,000 | 4,500,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
9/7/25 | 10:17 | 100,000 | 115.50 | 11,550,000 | 4,600,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
9/7/25 | 15:04 | 100,000 | 115.50 | 11,550,000 | 4,700,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
10/7/25 | 11:40 | 100,000 | 115.50 | 11,550,000 | 4,800,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
10/7/25 | 14:52 | 100,000 | 115.50 | 11,550,000 | 4,900,000 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
11/7/25 | 10:54 | 100,000 | 115.00 | 11,500,000 | 5,000,000 |
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 5.100.000 eigin hluti fyrir 580.517.470 kr.
Reitir eiga nú samtals 5.100.000 eigin hluti, eða um 0,73% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 691.900.000.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á .
