REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 5
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 5. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 400.000 eigin hluti að kaupverði 34.637.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
2/2/23 | 09:35 | 150,000 | 86.50 | 12,975,000 | 11,150,000 |
2/2/23 | 09:56 | 100,000 | 87.25 | 8,725,000 | 11,250,000 |
3/2/23 | 14:42 | 150,000 | 86.25 | 12,937,500 | 11,400,000 |
Samtals | 400,000 | 34,637,500 | 11,400,000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 6,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 34.637.500 kr. sem samsvarar 6,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 17.900.000 eigin hluti, eða um 2,35% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á .
