REITIR: Kaup á Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi - öllum fyrirvörum aflétt
Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á félaginu L1100 ehf., sem nálgast má , tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt.
Eins og fram hefur komið í fyrri tilkynningu þá hefur kaupsamningur verið undirritaður og mun afhending fara fram 1. ágúst nk. Fasteignin er við Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi og er um 3.900 fm. að stærð. Samhliða kaupunum hefur verið gerður leigusamningur til langs tíma um rekstur hótelsins við Flóra hotels sem rekur einnig Reykjavík Residence, Tower Suites og tvö hótel undir merkjum Oddsson. Áætlaðar leigutekjur á ársgrunni er um 200 m.kr.
Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000, og Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga og greininga í síma 659 1700, .
