REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar

REITIR: Ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita hefur á grundvelli gildandi heimildar hluthafa félagsins til kaupa á eigin bréfum, tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er að kaupa allt að 20 milljónir hluta sem jafngildir 3,0% af útistandandi hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.500 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst fimmtudaginn 20. febrúar næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi til 31. ágúst 2020.

Stjórn félagsins stefnir að framkvæmd annarrar endurkaupaáætlunar allt að svipuðu umfangi í kjölfar þeirrar sem nú er tilkynnt um. Endurkaup ársins geta því orðið umtalsvert meiri en verið hefur á síðustu árum en ráðast þó af tækifærum á markaði með atvinnuhúsnæði.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 719.840 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu janúarmánaðar 2020.

Tilkynnt verður síðar um hvaða markaðsaðili muni framkvæma endurkaupaáætlunina. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.

EN
17/02/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 79,050 shares at 126.500ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

REITIR: Leiðrétting: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

REITIR: Leiðrétting: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi leiðrétta tilkynningu  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti námkomins aðila stjórnanda

REITIR: Viðskipti námkomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti stjórnanda

REITIR: Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch