REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Niðurstöður aðalfundar þann 8. mars 2023

REITIR: Niðurstöður aðalfundar þann 8. mars 2023

Miðvikudaginn 8. mars 2023 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hotel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 15.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins:

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2022.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári

Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1,89 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2022 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 31. mars 2023, 9. mars 2023 er arðleysisdagur og 10. mars 2023 verður arðsréttindadagur.

3. Heimild til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin bréfum.

4. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum

Tillaga um lækkun hlutafjár úr 763.138.233 kr. í 745.638.233 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.

5. Starfskjarastefna félagsins

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu félagsins.

6. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd

Aðalfundur staðfesti skipun Margretar Flóvenz, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Hilmars G. Hjaltasonar í tilnefningarnefnd félagsins.

7. Kjör stjórnarmanna félagsins

Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: Elín Árnadóttir, Guðmundur Kristján Jónsson, Gréta María Grétarsdóttir, Kristinn Albertsson og Þórarinn V. Þórarinsson.

8. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags

Aðalfundur samþykkti að Ernst & Young ehf. yrði endurskoðunarfélag félagsins.

9. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár

Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 400.000 kr. fyrir stjórnarmenn  en laun stjórnarformanns verði tvöföld stjórnarlaun. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 155.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 90.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í öðrum undirnefndum verður 45.000 kr. á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fær hvor nefndarmaður greiddar 800.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður nefndarinnar fær greiddar 1.200.000 kr. fyrir starfsárið. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.

10. Önnur mál

Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 15.48.



EN
08/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Uppgjör fyrri árshelmings 2025

REITIR: Uppgjör fyrri árshelmings 2025 Rekstur Reita á fyrri hluta ársins gekk vel og afkoma er í takt við útgefnar horfur. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 5.674 millj. kr. og heildarhagnaður 2.771 millj. kr. á fyrri árshelmingi. Rekstrarhagnaður árshlutans óx um 8,3% samanborið við fyrra ár og leigutekjur jukust um 10,5% miðað við sömu tímabil, eða sem nemur 5,9% umfram verðlag. Lækkun verðbólgu undanfarið hefur haft jákvæð áhrif á fjármagnsgjöld samanborið við fyrra ár. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri hluta ársins nam um 3,6 milljörðum króna, og heildareignir samstæðunnar v...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viljayfirlýsing við Þarfaþing ehf. undirrituð um Kringlureit

REITIR: Viljayfirlýsing við Þarfaþing ehf. undirrituð um Kringlureit Reitir fasteignafélag hf., fyrir hönd Reita - þróunar ehf. og Reita atvinnuhúsnæðis ehf., og Þarfaþing ehf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að hefja hönnunarvinnu á Kringlureit.  Aðilar lýsa jafnframt yfir sameiginlegum vilja til að ganga til samninga um samstarf vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis með bílageymslu á A - reit Kringlureits á grundvelli þeirra forsendna sem mótast hafa í samningaviðræðum aðila að undanförnu. Heildarumfang samstarfsins gæti numið allt að 10 ma.kr.   Verkið sem um ræðir felur í sér alver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingar uppgjörs fyrri árshe...

REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingar uppgjörs fyrri árshelmings 2025  Reitir munu birta árshlutauppgjör vegna fyrri árshelmings 2025 eftir lokun markaða í dag, fimmtudaginn 21. ágúst 2025.   Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri kynna uppgjörið.   Fundinum verður að þessu sinni eingöngu streymt í gegnum netið og hefst kl. 8:30 föstudaginn 22. ágúst nk. Hægt er nálgast fundinn á slóðinni:    Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum...

 PRESS RELEASE

REITIR: Birting grunnlýsingar

REITIR: Birting grunnlýsingar Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 19. ágúst 2025, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Reita,  Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um Reiti fasteignafélag hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu. Upplýsingar veitir: Einar Þorsteinsson, fjármála...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 33 og 34 - Lok endurkaupaá...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 33 og 34 - Lok endurkaupaáætlunar Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 33 viku og 34 viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch