REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Rekstrarhagnaður 9.162 m.kr. á árinu 2022

REITIR: Rekstrarhagnaður 9.162 m.kr. á árinu 2022

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2022.

Lykiltölur rekstrar20222021
Tekjur13.48111.850
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-3.590-3.418
Stjórnunarkostnaður-729-688
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu9.1627.744
Matsbreyting fjárfestingareigna1.8078.743
Rekstrarhagnaður10.96916.487
Hrein fjármagnsgjöld-10.677-6.748
Heildarhagnaður6757.609
Hagnaður á hlut0,9 kr9,8 kr.
   
Lykiltölur efnahags31.12.202231.12.2021
Fjárfestingareignir172.270168.147
Handbært og bundið fé8711.008
Heildareignir174.880171.124
Eigið fé56.10458.719
Vaxtaberandi skuldir97.08790.895
Eiginfjárhlutfall32,0%34,3%
Skuldsetningarhlutfall58,3%55,9%
   
Lykilhlutföll20232022
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)95,1%95,1%
NOI hlutfall64,6%59,3%
Rekstrarhagnaðarhlutfall25,3%26,2%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,1%5,3%

 

Guðjón Auðunsson, forstjóri:

"Rekstur Reita á árinu 2022 gekk mjög vel og horfur fyrir árið 2023 eru góðar. Tekjuvöxtur milli ára var sá mesti sem félagið hefur séð í nokkurn tíma og rekstrarhagnaður jókst hratt og er sem hlutfall af heildartekjum kominn í grennd við 65%.

Nýting eigna hefur aukist jafnt og þétt síðustu misseri. Mikið er um gerð nýrra og endurnýjaðra leigusamninga við öfluga leigutaka, þá er mjög stór hluti óútleigðra rýma vegna eigna í þróunar- eða framkvæmdaferli. Umfangsmiklar framkvæmdir eru hafnar og í undirbúningi víða innan eignasafnsins á spennandi staðsetningum, s.s. í Ármúla 7-9, Holtagörðum og Laugavegi 176.

Rénun heimsfaraldursins hefur jákvæð áhrif í samanburði milli ára. Búið er að ganga frá öllum eftirhreytum þessa tímabils.

Verðbólga setur svip sinn á reikning félagsins og skýrir hún aukningu í fjármagnsgjöldum á árinu. Jákvæð matsbreyting mælist yfir árið en á fjórða ársfjórðungi var umtalsverð matslækkun vegna skarpt hækkandi raunvaxta.

Árs- og samfélagsskýrsla Reita fyrir árið 2022 er komin út á . Í henni má finna ítarupplýsingar um leigutaka, fasteignir og leigusamninga félagsins ásamt upplýsingum um áherslur í sjálfbærnimálum á árinu.“

 

Horfur ársins

Stjórnendur Reita hafa metið rekstrarhorfur félagsins fyrir árið 2023 og eru væntingar um að rekstur á árinu verði góður, útleiga aukist milli ára og að vöxtur kostnaðar verði hóflegur.

Gert er ráð fyrir að tekjur ársins verði á bilinu 14.650 - 14.850 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði á bilinu 9.900 -10.100 m.kr.

Horfur um afkomu gera ráð fyrir óbreyttu eignasafni, um 6% meðalverðbólgu yfir árið 2023, að eignabreytingar ársins 2022 skili nettó aukningu tekna um 90 m.kr. og að útleigu- og framkvæmdaverkefni ársins fari að skila auknum tekjum á síðari hluta ársins.

Félagið áformar áframhaldandi fjárfestingar innan eignasafnsins sem og kaup nýrra tekjuberandi eigna ef tækifæri gefast.

 

Aðalfundur

Stjórn leggur til við aðalfund að greiddur verði arður að fjárhæð 1,89 kr. á hlut vegna ársins 2022. Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 8. mars n.k. á Hótel Reykjavik Natura og hefst kl 15.

 

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða markaðsaðilum og fjárfestum á kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 14. febrúar í Ásbergi, Sambíóunum Kringlunni.

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, reitir.is/fjarfestar.

Um Reiti

Reitir fasteignafélag er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis, sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 135 talsins, um 455 þúsund fermetrar að stærð.

Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Icelandair Group, Sjóvár, Origo og Advania og skrifstofu Landspítalans við Skaftahlíð 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg og Hotel Hilton Reykjavík Nordica ásamt Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög. Þá heldur félagið á nokkrum verðmætum byggingarreitum.

Upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.

Viðhengi



EN
13/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 22. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 462.126 eigin hluti að kaupverði 54.098.7...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20 og 21

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20 og 21 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.                     Í 20. viku voru engin viðskipti. Í 21. viku 2025 key...

 PRESS RELEASE

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á hóteli við Hlíðasmára í Kópavo...

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á hóteli við Hlíðasmára í Kópavogi Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita og IS FAST-3, sem sjá má , tilkynnist að kaupsamningur hefur verið undirritaður.   Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum í kaupsamningi Flóru hotels ehf. um rekstrarfélagið hefur verið aflétt.   Ráðgjafi seljenda í viðskiptunum var fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf.  Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á  og Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga og greininga í síma 659 1700 og á .  

 PRESS RELEASE

REITIR: Samkomulag við Ríkiseignir vegna hjúkrunarheimilis

REITIR: Samkomulag við Ríkiseignir vegna hjúkrunarheimilis Reitir hafa gengið til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu 20 ára. Fasteignin er um 6.500 fermetrar að stærð og mun hýsa 87 hjúkrunarrými og tengda starfsemi. Fasteignin hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair. Fjárfesting Reita í hjúkrunarheimilum og öðrum tengdum innviðum er liður í samfélagslegri ábyrgð félagsins og stuðlar að nauðsynlegri uppbyggingu á hjúkrunarrýmum. Breytt aldursamsetning þjóðar og öldrun kallar á verulega aukningu slíkra rýma til þess að mæta ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.  Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunari...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch