REITIR: Samkomulag við Ríkiseignir vegna hjúkrunarheimilis
Reitir hafa gengið til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu 20 ára. Fasteignin er um 6.500 fermetrar að stærð og mun hýsa 87 hjúkrunarrými og tengda starfsemi. Fasteignin hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair.
Fjárfesting Reita í hjúkrunarheimilum og öðrum tengdum innviðum er liður í samfélagslegri ábyrgð félagsins og stuðlar að nauðsynlegri uppbyggingu á hjúkrunarrýmum. Breytt aldursamsetning þjóðar og öldrun kallar á verulega aukningu slíkra rýma til þess að mæta áætlaðri eftirspurn næstu áratugi. Með þátttöku sinni styður félagið við uppbyggingu mikilvægra innviða sem skipta sköpum fyrir velferð og heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar.
Fjárfestingin er einnig liður í vaxtarstefnu félagsins og styður við markmið um fjölgun nýrra eignaflokka.
Samningurinn leiðir til fjárfestingar af hálfu Reita upp á um 3,5 milljarða króna vegna breytinga á umræddri fasteign sem dreifist yfir næstu 18 mánuði, og verða fjármagnaðar úr sjóðum félagsins. Reitir áætla að árleg aukning tekna vegna leigusamningsins að framkvæmdum loknum sé um 450 m.kr. og árleg aukning rekstrarhagnaðar (NOI) sé um 430 m.kr
Nánari upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á .
