REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 6. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 34.088.233 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlanir stjórnar sem aðalfundir félagsins 2022 og 2023 veittu heimildir fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 711.550.000 kr. en var fyrir lækkunina 745.638.233 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er þar af leiðandi 711.550.000 kr. að nafnverði.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: , sími: 669 4416.



EN
25/03/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Leiðrétting flöggunartilkynningar - Stefnir hf.

REITIR: Leiðrétting flöggunartilkynningar - Stefnir hf. Í tilkynningu sem birt var fyrr í dag um flöggun frá Stefni hf. sem sjá má , var ranglega sagt að farið væri yfir 5% eignarhlut í Reitum. Hið rétta er að farið er undir 5% eignarhlut í Reitum, sbr. meðfylgjandi tilkynningu, og leiðréttist það hér með. Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Stefnir hf.

REITIR: Flöggun - Stefnir hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Stefni hf. fyrir hönd sjóða í rekstri félagsins, þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Reitum. Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Útboð á skuldabréfum 7. maí 2024 í nýjum flokki

REITIR: Útboð á skuldabréfum 7. maí 2024 í nýjum flokki Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 7. maí næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki REITIR150534. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Greiðslur vaxta og afborgana eru á tveggja mánaða fresti, nafnvextir ráðast af niðurstöðu útboðs. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilbo...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 6. mars 2024 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 711.550.000 hlutir og eru 5.550.000 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunar...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 18 - Lok endurkaupaáætluna...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 18 - Lok endurkaupaáætlunar Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 18. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 407.602 eigin h...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch