REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Stjórn nýtir heimild til hlutafjáraukningar

REITIR: Stjórn nýtir heimild til hlutafjáraukningar

Á fundi sínum í dag ákvað stjórn Reita fasteignafélags hf. („Reita“) að nýta heimild þá sem hluthafafundur 22. september 2020 veitti henni til að hækka hlutafé félagsins um allt að 120.000.000 hluti. Fékk stjórn heimild til að ákvarða útboðsgengi hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur útboðsins að öðru leyti.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Reitum er 658.476.201 kr. og hyggst félagið gefa út 120.000.000 nýja hluti til viðbótar. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Viðskipti með hina nýju hluti verða í kerfum Nasdaq Iceland undir auðkenninu REITIR (ISIN: IS0000020352).

Hlutafjárhækkunin mun fara fram á grundvelli almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum þar sem hluthafar Reita njóta forgangs að hinum nýju hlutum, en að forgangsrétti frágengnum verða hinir nýju hlutir boðnir almennum fjárfestum í almennu útboði sem fram fer samhliða forgangsréttarútboðinu.

Útboð 20.-21. október 2020

Ákveðið hefur verið að útboðið fari fram dagana 20. og 21. október 2020. Stærð útboðsins nemur 120.000.000 hlutum eða sem nemur 18,22% af útistandandi hlutafé í félaginu. Heildarsöluandvirði útboðsins mun nema 5.160 milljónum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem boðnir eru til sölu í útboðinu. Áætlaður kostnaður félagsins vegna hækkunar hlutafjárins er um 65 milljónir króna.

Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 43 kr. á hlut eða sem samsvarar 4% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa Reita á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 28. september 2020. Forgangsréttarhafar að hinum nýju hlutum Reita eru þeir aðilar sem skráðir eru í hlutaskrá Reita hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð í lok dags þann 19. október 2020 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín samkvæmt reglum útboðsins.

Seljandi mun fyrst úthluta hinum nýju hlutum til þeirra aðila sem njóta forgangsréttar. Verði enn nýjum hlutum í Reitum óúthlutað eftir úthlutun til forgangsréttarhafa, verður þeim úthlutað í almenna útboðinu og mun útgefandi einhliða ákveða hvernig úthlutun þessara hluta verður háttað.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega í lok dags 21. október 2020. Eindagi kaupverðs í útboðinu er áætlaður þann 28. október 2020 og er gert ráð fyrir að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta og að viðskipti með þá hefjist eigi síðar en 16. nóvember 2020. 

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu ásamt Íslandsbanka hf.

Helstu skilmálar útboðsins:

  • Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr.
  • Nálgast má áskriftarform á vef Arctica Finance hf. (/reitir-utbod) og vef Íslandsbanka hf. (/reitir-utbod) frá 20. október 2020 kl. 10:00 (GMT) til 21. október 2020 kl. 16:00 (GMT)
  • Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá Arctica Finance í síma 513 3300 milli kl. 10:00 og 16:00 dagana 20. október og 21. október 2020 og á tölvupóstfanginu .

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um Reiti og skilmála útboðsins í lýsingu Reita sem áætlað er að birta þann 9. október 2020 og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti, bæði er varðar rekstur Reita og almenna áhættu sem er samfara því að fjárfesta í hlutabréfum.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um Reiti, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem áætlað er að gefin verði út 9. október 2020 og birt verður á /fjarfestar. Þar má nálgast lýsinguna lögum samkvæmt frá birtingu hennar.

Stjórn Reita fasteignafélags hf.

EN
28/09/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026 Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 25. mars 2026 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Drög að dagskrá fundarins: Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfumTillaga um lækkun hlutafjár til jöfnun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch