REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Útboð á skuldabréfum 18. janúar 2024

REITIR: Útboð á skuldabréfum 18. janúar 2024

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 18. janúar næstkomandi.

Boðin verða til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokknum REITIR150532. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2032 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Flokkurinn ber 2,30% fasta ársvexti en greiðslur vaxta og afborgana eru á tveggja mánaða fresti. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 7.000 m.kr. í flokknum.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 25. janúar 2024. Verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland samhliða.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, , sími 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, .



EN
16/01/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 40. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 295.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 39. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 220.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit Reitir fasteignafélag hf., fyrir hönd Reita - þróunar ehf. og Reita atvinnuhúsnæðis ehf., og Þarfaþing hf. hafa skrifað samning um alverktöku vegna byggingar fyrsta áfanga Kringlureits.  Samningsfjárhæð verksins nemur rúmum 10 milljörðum króna. Fjöldi íbúða verður í kringum 170. Ráðgert er að framkvæmdir muni taka um fjögur ár. Aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu þann 21. ágúst sl. þar sem lýst var yfir sameiginlegum vilja til að ganga til samninga um samstarf vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis með bílageymslu á Kringlur...

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 50,000 shares at 113.000ISK and the significance rating of the trade was 54/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti fruminnherja

REITIR: Viðskipti fruminnherja Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti fruminnherja. Attachment

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch