REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Útboð á skuldabréfum 9. nóvember 2022

REITIR: Útboð á skuldabréfum 9. nóvember 2022

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki REITIR150524 og fer útboðið fram á morgun, miðvikudaginn 9. nóvember 2022.

Flokkurinn er óverðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Greiðslur vaxta fara fram á tveggja mánaða fresti, en allur höfuðstóll flokksins greiðist með einni greiðslu á lokagjalddaga hans þann 15. maí 2024. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfar útgáfu hans.

Útboðið fer fram á föstum kjörum, og verður flokkurinn seldur á ávöxtunarkröfunni 7,6%. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. nóvember 2022.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, , sími 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, .



EN
08/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

Reitir Fasteignafelag Hf: 2 directors

Two Directors at Reitir Fasteignafelag Hf bought 1,609,125 shares at 125.000ISK. The significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last t...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti stjórnanda

REITIR: Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Fjárhagsdagatal áranna 2025 og 2026

REITIR: Fjárhagsdagatal áranna 2025 og 2026 Reitir fasteignafélag hefur ákveðið breytingu á birtingu ársuppgjörs 2025 og tilkynnir samhliða um fjárhagsdagatal fyrir árið 2026. Eftirfarandi er uppfærð áætlun Reita um birtingu uppgjöra og dagsetning aðalfunda félagsins: Ársuppgjör 2025                                             16. febrúar 2026 Aðalfundur 2026                                             25. mars 2026 Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026                  11. maí 2026 Uppgjör annars ársfjórðungs 2026                24. ágúst 2026 Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026             ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokkunum REITIR150535

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokkunum REITIR150535 Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í skuldabréfaflokkunum REITIR150535 REITIR150535 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2035 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti. Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtuna...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch