REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Reita þann 11. mars 2021 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Áætlað er að kaupa nú allt að 6 milljónir hluta sem jafngildir 0,8% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 500 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst þriðjudaginn 26. október næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2022. Útgefið hlutafé Reita er 778.476.201 hlutir og eru 3.837.968 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 599.623 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu september 2021.

Fossar markaðir hf. munu framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á .



EN
25/10/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða 2025

REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða 2025 Afkoma af rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins var góð og í samræmi við áætlanir félagsins. Tekjur voru 13.401 millj. kr. og jukust um 10,5% milli ára og 6% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu var 8.769 millj. kr. og jókst um 9%. Heildarhagnaður samstæðunnar á árshlutanum var 5.765 millj. kr. samanborið við 10.373 millj. kr. árið áður, en breyting milli ára er að miklu leyti til komin vegna minni verðbólgu.   Fjárfesting nálgast markmið og vaxtaráform raungerast  Vel gengur að framfylgja vaxtarstefnu félagsins og við birtingu uppgjörs...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45 - Lok endurkaupaáætluna...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45 - Lok endurkaupaáætlunar Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 45. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 427.8...

 PRESS RELEASE

REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingu uppgjörs 10. nóvember

REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingu uppgjörs 10. nóvember Reitir munu birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2025 þann 10. nóvember eftir lokun markaða.   Á rafrænum kynningarfundi þann 11. nóvember kl. 8:30 munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum.  Streymi fundarsins má nálgast á slóðinni: .  Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið [email protected].  Uppgjörið og kynningarefni verður aðg...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 44. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 770.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 43. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 504.200 eigin hluti að kaupver...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch