REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Uppgjör fyrri árshelmings 2024

REITIR: Uppgjör fyrri árshelmings 2024

Niðurstaða rekstrar á fyrri hluta ársins er í takti við útgefnar horfur um afkomu. Rekstrarhagnaður nam 5.242 millj. kr. og heildarhagnaður 9.253 millj. kr. á fyrri árshelmingi.  Leigutekjur og rekstrarhagnaður vaxa umfram verðlag og hefur lækkun verðbólgu undanfarið haft jákvæð áhrif á fjármagnsgjöld samanborið við fyrra ár. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri hluta ársins var kröftug og nam tæpum 12,3 milljörðum króna. Heildareignir samstæðunnar voru 212.441 millj. kr. og eigið fé 66.381 millj. kr. í lok júní s.l.

Fjárfest fyrir tæpa 6 ma.kr. á fyrri árshelmingi í takti við nýja stefnu

Reitir kynntu nýja stefnu í maí s.l. þar sem sjónum er í ríkara mæli beint að vexti eignasafnsins, þróunarverkefnum með sjálfbærni í forgrunni og fjárfestingu í fjölbreyttari eignaflokkum. Samhliða innleiðingu stefnunnar voru sett fram átta mælanleg markmið sem styðja við stefnuna og falla að áherslu á drifkraft og þekkingu, sjálfbærni, framúrskarandi rekstur, vöxt og arðsemi.

Áformum félagsins um stækkun eignasafnsins hefur verið fylgt eftir af krafti og hefur félagið á fyrstu sex mánuðum ársins fjárfest innan og utan eignasafnsins fyrir tæpa sex milljarða. Keypti félagið m.a. húsnæði fyrir dagdvöl aldraðra og safn verslunarhúsnæðis miðsvæðis í Reykjavík auk þess að fjárfesta í uppbyggingu nýs Hyatt Centric hótels við Laugaveg 176 og stækkun Klíníkurinnar í Ármúla. Eftir lok reikningsskilatímabilsins hefur félagið fjárfest í eignum fyrir 1,4 milljarða og önnur viðskipti að fjárhæð tæpir 1,5 milljarðar eru í vinnslu. 

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:

„Þekking og fjárhagslegur styrkur Reita eru að nýtast vel í þróun innviða sem samfélagið þarfnast. Nýlega undirritað rammasamkomulag um uppbyggingu fimm hjúkrunarheimila með samtals um 400-600 rýmum á næstu árum er gott dæmi um slíka framkvæmd. Heildarumfang samstarfsins gæti numið 24 til 36 milljörðum króna.

Framvinda í þróunarverkefnum félagsins hefur verið góð. Hafin er gríðarlega spennandi uppbygging nýs atvinnuhverfis á sveitarfélagamörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið, sem er um 90 þúsund fermetrar og hefur fengið nafnið Korputún, er einstakt því það verður fyrsta BREEAM Communities vistvottaða atvinnuhverfið á Íslandi. Mikill áhugi er á verkefninu enda einstök staðsetning og afar áhugavert skipulag sem felur í sér uppbyggingaráform sem munu höfða til fjölbreyttra fyrirtækja.

Við hlökkum til að tilkynna um samstarf við tvö stórfyrirtæki í smásölugeiranum varðandi húsnæði í Korputúni. Annarsvegar er um að ræða sölu lóða með um 17 þúsund fermetra byggingamagni. Hinsvegar er um að ræða matvöruverslun sem verður kjölfesta í verslunarkjarna svæðisins auk þess að koma til með að þjóna íbúum í nýju aðliggjandi hverfi sem er í þróun í Blikastaðalandi.“

Árshlutauppgjör fyrri árshelmings 2024

Stjórn Reita hefur samþykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrri hluta ársins 2024. Lykiltölur uppgjörsins eru eftirfarandi:

Lykiltölur rekstrar6M 20246M 2023
Leigutekjur7.9417.351
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-2.177-2.062
Stjórnunarkostnaður*-448-381
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu*5.3164.908
Matsbreyting fjárfestingareigna12.26810.046
Rekstrarhagnaður17.51014.954
Hrein fjármagnsgjöld-5.736-6.488
Heildarhagnaður9.2536.747
Hagnaður á hlut13,00 kr9,10 kr
   
Lykiltölur efnahags30.6.202431.12.2023
Fjárfestingareignir208.766189.971
Handbært og bundið fé2.1241.408
Heildareignir212.441193.381
Eigið fé66.38160.273
Vaxtaberandi skuldir118.089108.432
Eiginfjárhlutfall31,2%31,2%
Skuldsetningarhlutfall58,4%58,9%
   
Lykilhlutföll6M 20246M 2023
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)94,8%96,0%
Arðsemi eigna5,7%5,7%
Rekstrarhagnaðarhlutfall63,5%64,1%
Rekstrarkostnaðarhlutfall26,0%26,9%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,3%5,0%

*án einskiptiskostnaðar

Eldur í Kringlu

Um miðjan júní sl. varð eldur laus í þakklæðningu Kringlunnar og varð tjón vegna hans minna en hefði getað orðið. Til viðbótar við lögbundna brunatryggingu hafa Reitir einnig rekstrarstöðvunartryggingu sem er ætlað að ná yfir tjón af þessu tagi, bæði vegna brunans og mögulegs tekjutaps. Mat á umfangi tjónsins stendur yfir og er unnið að úrlausn mála í samstarfi við tryggingafélög. Gert er ráð fyrir að heildarniðurstaða skýrist á næstu mánuðum, þó einstök mál geti tekið lengri tíma.

Félagið metur tryggingastöðu sína vegna brunans góða og mun gefa frekari upplýsingar þegar endanlegt mat liggur fyrir.

Horfur ársins

Horfur ársins 2024 um rekstrarhagnað eru óbreyttar, gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði á bilinu 10.900 - 11.100 m.kr. Með nýjum eignum hafa horfur um tekjur vaxið og er nú gert ráð fyrir að tekjur ársins verði á bilinu 16.200 - 16.400 m.kr.

Útleiga á stórum rýmum sem eru í framkvæmdum hefur tafist auk aukningar í stjórnunarkostnaði vegna starfsloka og fjölgunar í starfsmannahópnum.

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á kynningarfund þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, föstudaginn 23. ágúst, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni  .

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið .

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita .

Um Reiti fasteignafélag

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í borgarinnviðum sem styðja við sjálfbært samfélag. 

Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og ríkisstofnanir. Gagnkvæmur ávinningur Reita, samstarfsaðila og samfélags er lykilþáttur í starfsemi Reita. 

Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. 

Nánari upplýsingar

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu  eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu  eða í síma 575 9000 og 699 4416.

 

Viðhengi



EN
22/08/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Fjárhagsdagatal 2025

REITIR: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi er áætlun Reita fasteignafélags hf. um birtingu uppgjöra og aðalfundi félagsins: Birting stjórnendauppgjörs fyrir 202427. janúar 2025Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniupplýsingar 20243. mars 2025Aðalfundur 2025 2. apríl 2025Afkoma 1. ársfjórðungs 202512. maí 2025Afkoma 2. ársfjórðungs 202521. ágúst 2025Afkoma 3. ársfjórðungs 202510. nóvember 2025Birting stjórnendauppgjörs fyrir 202526. janúar 2026Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniupplýsingar 20252. mars 2026Aðalfundur 202625. mars 2026 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum í Hvörfunum Kópavogi

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum í Hvörfunum Kópavogi Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á fasteignum í atvinnuhúsnæði að Tónahvarfi 3 í Kópavogi, sem sjá má , tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt. Kaupsamningar hafa verið undirritaðir og afhending farið fram. Fasteignirnar eru um 3.750 fm. að stærð og hýsa fjölbreyttan rekstur nokkurra leigutaka. Fasteignirnar eru í útleigu að fullu og eru áætlaðar leigutekjur á ársgrunni um 150 m.kr. og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 120 m.kr. á ársgrundvelli.  Uppl...

 PRESS RELEASE

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 21. nóvember 2024

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 21. nóvember 2024 Skuldabréfaútboði Reita fasteignafélags hf. í skuldabréfaflokknum REITIR150535 er lokið. Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2035 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti. Alls bárust tilboð að nafnverði 5.598 m.kr. Ákveðið var að taka...

 PRESS RELEASE

REITIR: Útboð á skuldabréfum 21. nóvember 2024 í nýjum flokki

REITIR: Útboð á skuldabréfum 21. nóvember 2024 í nýjum flokki Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 21. nóvember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki, REITIR150535. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2035 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með 180 jöfnum afborgunum og munu eftirstöðvar höfuðstóls greiðast í einni greiðslu á lokagjalddaga. Greiðslur vaxta og afborgana eru á tveggja mánaða fresti, nafnvex...

 PRESS RELEASE

REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða ársins

REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða ársins Sterkur rekstur og markviss fjárfesting í takt við stefnu félagsins Rekstur Reita hefur gengið afar vel á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Tekjur jukust um 8,3% og heildarhagnaður tímabilsins nam rúmum 10 mö.kr. Góður gangur var á vegferð félagsins í átt að vexti byggðum á öflugri þróunarvinnu, markvissum fasteignakaupum og uppbyggingu nýrra samfélagslegra mikilvægra eignaflokka. Félagið hefur fjárfest fyrir um 17 ma.kr. til dagsins í dag sem er vel umfram 11 ma.kr. markið sem sett var fyrir árið. Fjárfestingarnar eru bæði í uppbyggingu húsnæðis og...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch