SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2024

Síminn hf. - Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2024

Helstu niðurstöður úr rekstri á 1F 2024

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2024 námu 6.575 m.kr. samanborið við 6.298 m.kr. á sama tímabili 2023 og jukust um 4,4%. Tekjur af kjarnaþjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu aukast um rúmlega 7% á milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.435 m.kr. á 1F 2024 og hækkar um 120 m.kr. eða 9,1%. EBITDA hlutfallið er 21,8% á 1F 2024 en var 20,9% á sama tímabili 2023. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 431 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 318 m.kr. á sama tímabili 2023.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 195 m.kr. á 1F 2024 en námu 1 m.kr. á sama tímabili 2023. Vaxtagjöld hafa hækkað en einnig voru vaxtatekjur af skuldabréfi vegna sölu Mílu á 1F 2023. Fjármagnsgjöld námu 375 m.kr., fjármunatekjur voru 183 m.kr. og gengistap nam 3 m.kr.
  • Hagnaður á 1F 2024 nam 171 m.kr. samanborið við 246 m.kr. hagnað á sama tímabili 2023.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 16,2 ma.kr. í lok 1F 2024, en voru 10,5 ma.kr. í árslok 2023. Handbært fé í lok 1F 2024 nam 2,0 ma.kr., en var 1,8 ma.kr. í árslok 2023. Staða útlána hjá Símanum Pay var 2,9 ma.kr. í lok 1F 2024 og jókst lítilsháttar á fjórðungnum.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 44,4% í lok 1F 2024 og eigið fé 18,1 ma.kr.



Orri Hauksson, forstjóri:

„Tekjur, EBITDA og EBIT aukast milli ára á fyrstu mánuðum ársins sem er ánægjulegt, og eins og stefnt var að. Óvenju mikil hreyfing var á fjarskiptamarkaðinum, sem alla jafna er þó afar líflegur, en fyrsti fjórðungur einkenndist af mikilli nýsölu hjá Símanum en einnig meira brottfalli en fyrr. Rífleg inngöngutilboð tiltekinna markaðsaðila höfðu þar talsverð áhrif um nokkurra vikna skeið.

Á kostnaðarhlið rekstrar samstæðunnar gekk flest eftir eins og við mátti búast, utan þess að starfslok eins framkvæmdastjóra voru gjaldfærð. Nýlegir kjarasamningar voru í takt við væntingar okkar og flestir kostnaðarliðir fyrirsjáanlegir og samkvæmt væntingum. Síminn heldur áfram að vera fremur skuldlétt félag, þótt fyrirtækjakaup á fjórðungnum hafi að hluta verið fjármögnuð með nýju lánsfé. Álag á þær skuldir sem félagið aflar á markaði er með því hagstæðasta sem þekkist á Íslandi en hátt vaxtastig hefur engu að síður töluverð áhrif.

Síminn gerði breytingar á vöruframboði á einstaklingsmarkaði í fyrra með það að markmiði að sinna betur fleiri markhópum en fyrr. Hefur stökum vörum í sölu hjá Símanum í framhaldinu fækkað en mismunandi pökkum fjölgað. Sífelldar endurbætur voru gerðar í upphafi árs á farsímakerfi Símans, sem samkvæmt úttektaraðila á vegum Fjarskiptastofu var fyrir, það besta á Íslandi. Ný og uppfærð WiFi tækni hefur einnig verið tekin í gagnið sem mun bæta þráðlausa netupplifun á heimilum og í fyrirtækjum. Þá frumsýndi Síminn þrjár nýjar innlendar leiknar þáttaraðir í sjónvarpi á fjórðungnum auk þess að bjóða í samstarfi við KSÍ upp á beinar útsendingar frá leikjum yngri landsliða Íslands og yngri flokka félagsliða. Stöðugar umbætur og nýjungar eru rauði þráðurinn í þjónustu okkar við heimili.

Á fyrirtækjamarkaði verður á næstunni boðið upp á sterkara vöruúrval en fyrr, meðal annars með nýju fyrirtækjakreditkorti, uppfærðri símavist og bættum netkerfum. Vöruframboð til auglýsenda tók stakkaskiptum með því að Síminn eignaðist Billboard og tengd félög. Fram á við getur samstæðan þannig boðið auglýsendum fjölbreyttar leiðir til að ná til þeirra markhópa sem þeir kjósa. Við fögnum nýjum meðlimum Símafjölskyldunnar og uppfærum afkomuspá fyrir samstæðuna í heild með tilliti til innkomu þeirra, sem og horfur út árið.”



Kynningarfundur 24. apríl 2024

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans .

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: .

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á og verður þeim svarað í lok fundarins.



Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans ( )

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ( )



Viðhengi



EN
23/04/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins til aðalfundar, starfskjarastefna ásamt skýrslum tilnefningarnefndar og starfskjaranefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2...

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2025 Financial highlights Q4 2025 Revenue in Q4 2025 amounted to ISK 7,336m, compared with ISK 7,431m in the corresponding quarter of 2024, representing a decrease of 1.3%. Revenue from telecommunications and television services declined by ISK 206m, or 3.7%, year-on-year. Advertising revenue amounted to ISK 798m, compared with ISK 821m in the corresponding quarter last year, a decrease of 2.8%. It should be noted that parliamentary elections took place in the corresponding quarter of 2024.EBITDA in Q4 2025 amounted to IS...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch