SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Hæstiréttur snýr við dómi Landsréttar og lækkuð afkomuspá

Síminn hf. – Hæstiréttur snýr við dómi Landsréttar og lækkuð afkomuspá

Hæstiréttur birti í dag dóm í máli milli Símans og Samkeppniseftirlitsins þar sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 var staðfest og úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála um lækkun sektar var felldur úr gildi. Klofinn Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem og dómi Landsréttar um að ákvörðunin skyldi felld úr gildi og sektaði Símann um 400 milljónir króna.

Síminn telur dóminn veruleg vonbrigði, sérstaklega í ljósi þess að snúið er við bæði dómi Héraðsdóms og Landsréttar sem og að hluta úrskurði áfrýjunarnefndar. Um er að ræða sams konar tilboð og tíðkast hafa á markaði af öðrum félögum sem bundin eru af sömu ákvæðum og Síminn. Fyrir liggur að Síminn heldur ekki á sýningarrétti að ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta tímabili og ljóst er að niðurstaða dómsins er fordæmisgefandi um það hvernig unnt er að selja aðgang að ensku úrvalsdeildinni.

Þessi dómur Hæstaréttar mun hafa áhrif á afkomu Símans þar sem sektin verður gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2025. Áður birt EBITDA spá Símans fyrir árið 2025 var 7,0 til 7,4 milljarðar króna og EBIT spá var 3,6 til 4,0 milljarðar króna. Með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar er EBITDA spá Símans 6,6 til 7,0 milljarðar króna og EBIT spá 3,2 til 3,6 milljarðar króna.



Nánari upplýsingar veitir:

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, .



EN
26/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins til aðalfundar, starfskjarastefna ásamt skýrslum tilnefningarnefndar og starfskjaranefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025 Helstu niðurstöður úr rekstri á 4F 2025 Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2025 námu 7.336 m.kr. samanborið við 7.431 m.kr. á sama tímabili 2024 og lækkuðu um 1,3%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu lækkuðu um 206 m.kr. eða 3,7% milli tímabila. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 798 m.kr. samanborið við 821 m.kr. á sama tíma í fyrra sem samsvarar lækkun um 2,8%, en líta verður til þess að kosningar til Alþingis fóru fram á samanburðarfjórðungnum 2024.Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.916 m.kr. ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch