SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Kaupréttaráætlun starfsfólks

Síminn hf. - Kaupréttaráætlun starfsfólks

Á aðalfundi Símans hf. þann 10. mars 2022 var stjórn Símans veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og gera kaupréttarsamninga við starfsfólk félagsins um kaup á hlutum í félaginu.

Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna Símans og dótturfélaga og er markmið áætlunarinnar að samtvinna hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni félagsins. Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í Símanum hf. fyrir að hámarki kr. 1.500.000 einu sinni á ári í þrjú ár, eftir birtingu hálfsársuppgjörs fyrir árin 2024, 2025 og 2026.

Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við 23 starfsmenn sem hófu störf hjá félaginu á tímabilinu 1. júní 2024 til 31. maí 2025 í samræmi við samþykkta kaupréttaráætlun. Kaupverð í samningunum ákvarðast af vegnu meðalverði í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag:

  • Þann 1. september 2025 voru gerðir samningar við tuttugu starfsmenn og var kaupverð kr. 13,29 á hvern hlut sem nemur 2.257.336 hlutum miðað við 100% nýtingu kauprétta.
  • Þann 7. nóvember 2025 voru gerðir samningar við þrjá starfsmenn og var kaupverð kr. 13,87 á hvern hlut sem nemur 324.441 hlut miðað við 100% nýtingu kauprétta.

Fyrir eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk sem gerðir voru í maí 2023 og september 2024 sem ná til samtals 35.245.310 hluta. 

Kaupgengi hlutanna skiptist þannig að gildandi eru kaupréttir að 26.937.618 hlutum á genginu 10,58,  8.307.692 hlutum á genginu 9,75, 2.257.336  hlutum á genginu 13,29 og 324.441 á genginu 13,87. Heildarfjöldi starfsfólks með gilda kaupréttarsamninga eru 267.

Kaupréttaráætlun þessi var staðfest af Skattinum þann 12. maí 2023 og er í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Kaupréttaráætlun Símans hf. er meðfylgjandi.

Viðhengi



EN
11/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins til aðalfundar, starfskjarastefna ásamt skýrslum tilnefningarnefndar og starfskjaranefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025

Síminn hf. - Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins 2025 Helstu niðurstöður úr rekstri á 4F 2025 Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2025 námu 7.336 m.kr. samanborið við 7.431 m.kr. á sama tímabili 2024 og lækkuðu um 1,3%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu lækkuðu um 206 m.kr. eða 3,7% milli tímabila. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 798 m.kr. samanborið við 821 m.kr. á sama tíma í fyrra sem samsvarar lækkun um 2,8%, en líta verður til þess að kosningar til Alþingis fóru fram á samanburðarfjórðungnum 2024.Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.916 m.kr. ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch