SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Lækkun hlutafjár

Síminn hf. – Lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Símans hf. þann 11. mars 2021 voru samþykktar tvær tillögur stjórnar félagsins um að lækka hlutfé félagsins. Samanlagt lækkar hlutafé um kr. 1.210.000.000 að nafnverði og er hlutafé eftir breytinguna kr. 7.540.000.000.

Fyrri tillagan snýr að lækkun hlutafjár vegna eigin hluta. Lækkunin nemur kr. 316.145.251 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins þann 12. mars 2020 á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd föstudaginn 19. mars 2021.

Seinni tillagan snýr að lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa. Lækkunin nemur kr. 893.854.749 að nafnverði. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð, eða kr. 7.106.145.251 mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi. Samtals verða því kr. 8.000.000.000 greiddar til hluthafa hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra miðað við skráningu í hlutaskrá í lok dags 30. mars 2021. Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár er því föstudagurinn 26.mars 2021. Lögboðnar forsendur fyrir útgreiðslunni hafa nú verið uppfylltar og verður framkvæmd hennar eftirfarandi:

  • X-dagur 29. mars 2021
  • Viðmiðunardagur 30. mars 2021
  • Lækkunardagur 30. mars 2021
  • Greiðsludagur 8. apríl 2021

Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 11. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .



EN
18/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins til aðalfundar, starfskjarastefna ásamt skýrslum tilnefningarnefndar og starfskjaranefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2...

Síminn hf. - Results for the fourth quarter of 2025 and for the year 2025 Financial highlights Q4 2025 Revenue in Q4 2025 amounted to ISK 7,336m, compared with ISK 7,431m in the corresponding quarter of 2024, representing a decrease of 1.3%. Revenue from telecommunications and television services declined by ISK 206m, or 3.7%, year-on-year. Advertising revenue amounted to ISK 798m, compared with ISK 821m in the corresponding quarter last year, a decrease of 2.8%. It should be noted that parliamentary elections took place in the corresponding quarter of 2024.EBITDA in Q4 2025 amounted to IS...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch