Síminn hf. – Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa
Á hluthafafundi Símans hf. þann 26. október 2022 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins með greiðslu til hluthafa.
Lögboðin skilyrði fyrir framkvæmd hlutafjárlækkunarinnar eru nú fyrir hendi þar sem fyrirtækjaskrá hefur veitt félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög.
Lækkunin nemur kr. 2.900.000.000 að nafnverði. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð, eða kr. 28.600.000.000 mun verða færð til lækkunar á óráðstöfuðu eigin fé. Samtals verða því kr. 31.500.000.000 greiddar til hluthafa hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags 4. nóvember 2022. Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár er því miðvikudagurinn 2. nóvember 2022. Framkvæmd útgreiðslunnar verður eftirfarandi:
- Ex-dagur –1: 2. nóvember 2022
- Réttindaleysisdagur (Ex-dagur): 3. nóvember 2022
- Viðmiðunardagur: 4. nóvember 2022
- Lækkunardagur/greiðsludagur: 7. nóvember 2022
Hér á eftir fara nánari upplýsingar varðandi dagsetningar sem tilgreindar eru í framkvæmd lækkunar hlutafjár.
Ex-dagur - 1* - Síðasti viðskiptadagur
- Síðasti viðskiptadagur með bréfin ef núverandi hluthafi hyggst selja fyrir framkvæmd lækkunar.
- Kaupandi bréfanna mun fá bréfin afhend fyrir framkvæmd lækkunar og fá greiddar krónur til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
Réttindaleysisdagur (Ex-dagur)*
- Bréf hluthafa sem selur bréf sín á þessum degi eða seinna munu lækka og fær hluthafi greiddar krónur til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
- Seljandi verður að hafa í huga þann möguleika að bréf sem hann selur verða lækkuð fyrir afhendingu bréfa sem getur orðið til þess að viðkomandi haldi ekki á þeim fjölda bréfa sem hann skuli afhenda.
- Bréf kaupanda sem kaupir bréf í Símanum á þessum degi eða seinna munu ekki lækka og þar af leiðandi fær kaupandi ekki greitt.
Viðmiðunardagur
- Hlutafjáreign þeirra hluthafa sem skráðir eru í hluthafaskrá félagsins í lok þessa dags mun lækka til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
Lækkunardagur/Greiðsludagur
- Útgefið nafnvirði hlutafjár í Símanum mun lækka um kr. 2.900.000.000 að nafnvirði að morgni lækkunardags.
- Þeir hluthafar sem eiga bréf í lok viðmiðunardags fá greiddar krónur til samræmis við áður útgefna tilkynningu um niðurstöður hluthafafundar.
*Hér er miðað við að viðskipti séu gerð upp m.v. T+2 regluna.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .
