Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 8. október
Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN260422.
Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.300 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,90-8,09%. Tilboðum að fjárhæð 1.220 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,05% flötum vöxtum.
Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. október 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang:
Davíð Birgisson Scheving, forstöðumaður fjárstýringar Símans hf., netfang:
