Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 17. mars sl. er nú lokið.
Í 21. viku 2025 keypti Síminn hf. 2.170.000 eigin hluti að kaupverði 30.180.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
19.5.2025 | 09:38 | 1.000.000 | 13,90 | 13.900.000 | 58.172.462 |
20.5.2025 | 09:34 | 1.000.000 | 13,90 | 13.900.000 | 59.172.462 |
21.5.2025 | 09:44 | 170.000 | 14,00 | 2.380.000 | 59.342.462 |
2.170.000 | 30.180.000 | 59.342.462 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 17. mars 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.
Síminn átti 57.172.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 59.342.462 eða sem nemur 2,40% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 36.170.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,46% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.980.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
