SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Sala Mílu ehf. til Ardian France SA og uppfærð afkomuspá

Síminn hf. – Sala Mílu ehf. til Ardian France SA og uppfærð afkomuspá

Þann 15. september 2022 var tilkynnt að Síminn hf. („Síminn“) og Ardian France SA („Ardian“) hafi skrifað undir samkomulag um tilteknar breytingar á samningi um kaup og sölu 100% hlutafjár í Mílu ehf. („Míla“) sem tilkynnt hafði verið um þann 23. október 2021 sem og 22. júlí 2022. Í tilkynningunni kom jafnframt fram að Samkeppniseftirlitið samþykkti viðskiptin með tilteknum skilyrðum og að efndadagur yrði í lok september 2022.

Síminn hefur í dag fengið greitt að fullu fyrir Mílu, annars vegar 32,7 milljarðar króna í reiðufé og hins vegar 17,5 milljarðar króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Skuldabréfið ber 4% vexti og er framseljanlegt. Öll skilyrði kaupsamnings aðila eru þar með uppfyllt.

Áætlaður söluhagnaður Símans af viðskiptunum er nú 37,8 milljarðar króna að teknu tilliti til alls kostnaðar vegna viðskiptanna og uppfærðrar áætlunar um veltufjármuni og skuldir Mílu. Eins og hefðbundið er í viðskiptum sem þessum fer í framhaldi efndadags fram aðlögun kaupverðs sem byggist á fjárhagsstöðu Mílu eins og hún er 30. september 2022, en reiknað er með að aðlögun kaupverðs, hvort sem það verði til hækkunar eða lækkunar verði ekki veruleg.

Í kynningu á uppgjöri 2F 2022 kom fram að væntingar væru um að seinni helmingur ársins myndi skila góðri EBITDA afkomu en þar sem sala Mílu væri ófrágengin væri óvissa um meðferð sölukostnaðar og því ekki tilefni á þeim tíma að endurskoða afkomuspá. Nú þegar óvissu hefur verið eytt hefur félagið uppfært EBITDA afkomuspá fyrir árið 2022 og gerir ný spá ráð fyrir að EBITDA samstæðu verði á bilinu 5,8 – 6,1 milljarðar króna en EBITDA spá samstæðunnar var á bilinu 5,3 – 5,6 milljarðar króna.

Í næstu viku mun stjórn Símans boða til hluthafafundar sem áætlað er að halda þann 26. október nk. Á hluthafafundinum verður nánar gerð grein fyrir viðskiptunum og tillaga lögð fram um að lækka hlutafé félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna. Jafnframt er til skoðunar sala á framangreindu skuldabréfi eða eftir atvikum útgreiðsla þess til hluthafa en gera má ráð fyrir að tillaga þess efnis verði tekin fyrir á öðrum hluthafafundi.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson forstjóri Símans ( ).





EN
30/09/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Enda...

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Endanleg dagskrá Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins: . Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 11. mars 2026. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum SIMINN 29 1, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN 29 1 er nýr almennur (e. senior) skuldabréfaflokkur sem mun bera fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum, auk vaxtaálags sem mun ákvarðast í útboði. Lokagjalddagi flokksins verður þann 5. júní 2029. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð verða tekin á hæsta samþykkta álagi á 1M REIBOR. Samhliða útboðinu gefst núverandi eigen...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda

Síminn hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá meðfylgjandi viðhengi í tengslum við viðskipti stjórnanda hjá Símanum hf.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch