SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 13. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 247.500.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum. Endurkaupin nú munu að hámarki nema 500 milljónum króna að kaupverði.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 2.233.614 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í maí 2025. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast þriðjudaginn 10. júní 2025.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.



EN
06/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 13. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 247.500.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki SIMINN 28 1. SIMINN 28 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,3% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 5. júní 2028. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.200 m.kr. á pari (genginu 100,0). Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða teki...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 28. maí 2025

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 28. maí 2025 Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN251203. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 560 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,90-8,30%. Tilboðum að fjárhæð 240 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,04% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 4. júní 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðsk...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 17. mars sl. er nú lokið. Í 21. viku 2025 keypti Síminn hf. 2.170.000 eigin hluti að kaupverði 30.180.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti19.5.202509:381.000.00013,9013.900.00058.172.46220.5.202509:341.000.00013,9013.900.00059.172.46221.5.202509:44170.00014,002.380.00059.342.462  2.170.000 30.180.00059.342.462 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem ti...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útboð á víxlum 28. maí 2025

Síminn hf. - Útboð á víxlum 28. maí 2025 Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 28. maí 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki SIMINN251203. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðs...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch