Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2021 verður birt eftir lokun markaðar 31. ágúst 2021
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2021 þann 31. ágúst næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 1. september 2021 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: . Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .
