Síminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir lokun markaðar 21. október
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2025 þriðjudaginn 21. október næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 22. október í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í . Þeir sem vilja bera upp spurningar meðan á streymi stendur geta sent þær á og þeim verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Hersir Aron Ólafsson á netfanginu .
