SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Upplýsingar um framgang kaupa Ardian France SA á Mílu ehf. af Símanum hf.

Síminn hf. - Upplýsingar um framgang kaupa Ardian France SA á Mílu ehf. af Símanum hf.

Vísað er til tilkynningar Símans hf. („Síminn“) dags. 23. október 2021 þar sem fram kom að Síminn og Ardian France SA („Ardian“) hefðu undirritað kaupsamning um kaup og sölu 100% hlutafjár í Mílu ehf. („Míla“) með hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 9. júlí 2022 tilkynnti Síminn um að Ardian hefði upplýst að félagið hefði óskað eftir sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið. Ardian hefur skilað tillögum að skilyrðum til þess að mæta samkeppnislegum áhyggjum Samkeppniseftirlitsins.

Í dag upplýsti Ardian Símann um að það væri mat Ardian að tillögurnar sem félagið hefði lagt fyrir Samkeppniseftirlitið varðandi breytingar á fyrirhuguðum heildsölusamningi milli Símans og Mílu að breytingarnar væru íþyngjandi og þess eðlis að fela í sér neikvæð áhrif í skilningi kaupsamnings aðila. Það væri mat Ardian að ef samruninn verði samþykktur af hálfu samkeppnisyfirvalda með fyrirliggjandi skilyrðum feli það í sér að eitt af skilyrðum þess að viðskiptin gangi í gegn samkvæmt kaupsamningnum teljist ekki uppfyllt. Ardian hefur upplýst að félagið sé ekki reiðubúið til þess að ljúka viðskiptunum á grundvelli óbreytts kaupsamnings.

Ljóst er af þessu að Síminn mun þurfa að ræða við Ardian um atriði sem varða kaupsamning aðila, samhliða viðræðum Ardian við Samkeppniseftirlitið. Líkt og áður mun Síminn mun upplýsa um leið og frekari upplýingar liggja fyrir um framgang viðskiptanna.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson ( ).



EN
17/07/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 7. mars sl. kl. 16:00. Framboð til stjórnar Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Arnar Þór MássonBjarni ÞorvarðarsonJón SigurðssonSigrún Ragna ÓlafsdóttirValgerður Halldórsdóttir Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í samræmi við samþykktir félagsins skulu fimm stjórnarme...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Enda...

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Endanleg dagskrá Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins: . Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 11. mars 2026. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum SIMINN 29 1, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN 29 1 er nýr almennur (e. senior) skuldabréfaflokkur sem mun bera fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum, auk vaxtaálags sem mun ákvarðast í útboði. Lokagjalddagi flokksins verður þann 5. júní 2029. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð verða tekin á hæsta samþykkta álagi á 1M REIBOR. Samhliða útboðinu gefst núverandi eigen...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

Siminn Hf: 1 director

A director at Siminn Hf bought 700,000 shares at 14.100ISK and the significance rating of the trade was 57/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two years clearly sh...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch