SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan hf. – Niðurstöður aðalfundar 21. mars 2024 og útgáfa Samfélagsskýrslu 2023

Síldarvinnslan hf. – Niðurstöður aðalfundar 21. mars 2024 og útgáfa Samfélagsskýrslu 2023

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt þann 21. mars 2024. Mætt var fyrir 89,4 % atkvæða.

Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins:

Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2024 vegna rekstrarársins 2023 verði 1,73 kr. á hlut eða 3.200,6 milljónir kr. (um 23,5 milljónir USD á lokagengi ársins 2023 sem var 136,2 ISK). Arðurinn verður greiddur 26. mars 2024. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 25. mars 2024.

Tillaga um starfskjarastefnu

Tillaga að starfskjarastefnu var lögð fram óbreytt og var hún samþykkt.

Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins

Samþykkt var að stjórnarlaun vegna ársins 2024 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 600.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 400.000. Varamenn verði með kr. 200.000 á mánuði.

Kosning stjórnar félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin: Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn: Arna Bryndís Baldvins McClure og Ingi Jóhann Guðmundsson. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir næsta ár verði PricewaterhouseCoopers (Vignir Rafn Gíslason).

Tillaga um endurskoðunarnefnd

Samþykkt var tillaga stjórnar um tilnefningu nefndarmanna í endurskoðunarnefnd. Tilnefnd voru þau Arna Bryndís Baldvins McClure, Guðmundur Kjartansson og Jakob Bjarnason.

Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti að framlengja heimild stjórn félagsins til að kaupa eigin hluti í félaginu til næstu átján mánaða.

Stjórn félagsins kom saman í kjölfar aðalfundar og hefur skipt með sér verkum. Var ákveðið að Þorsteinn Már Baldvinsson yrði stjórnarformaður og Guðmundur Rafnkell Gíslason varaformaður stjórnar.

Samfélagsskýrsla Síldarvinnslunnar 2023

Samfélagsskýrsla Síldarvinnslunnar 2023 var gefin út og kynnt í dag á aðalfundi félagsins í Neskaupstað. Útgáfa samfélagsskýrslu er mikilvægur liður í upplýsingagjöf Síldarvinnslunnar til fjárfesta, starfsfólks og annarra hagaðila um ófjárhagslega þætti í starfsemi félagsins. Í skýrslunni er meðal annars að finna nákvæmt umhverfisbókhald samstæðunnar fyrir árið 2023 sem og ýmsar aðrar upplýsingar sem tengjast stjórnarháttum og samfélagsmálum. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um helstu verkefni starfsfólks á starfssvæðum félagsins sem og helstu samfélagsverkefni sem Síldarvinnslan studdi á árinu. Þá er í skýrslunni yfirlit um það samfélagsspor sem félagið skyldi eftir sig á árinu 2023.

Upplýsingar í skýrslunni ná til Síldarvinnslunnar og dótturfélaga á Íslandi. Kaflaskipting og skipulag skýrslunnar tekur mið af leiðbeiningum frá Nasdaq Ísland kauphöllinni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja með sérstaka áherslu á sjálfbærni. Við gerð skýrslunnar var einnig horft til þeirra áhersluatriða sem felast í sjálfbærnistefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Síldarvinnslan hefur stækkað mikið á síðustu árum og er kjölfestufyrirtæki í þeim samfélögum sem fyrirtækið starfar í. Samfélagsskýrslan er liður í að greina frá því sem vel er gert og benda á það sem betur má fara, því ávallt eru möguleikar til að gera betur.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar:

„Markmið okkar með útgáfu samfélagsskýrslu er að auka gagnsæi um starfsemi félagsins og tryggja að ófjárhagslegar upplýsingar séu aðgengilegar. Samfélagsskýrsla félagsins er nú gefin út fimmta árið í röð og hefur hún þróast stöðugt á þeim tíma. Skýrslan veitir gott og aðgengilegt yfirlit um starfsemi Síldarvinnslunnar. Sömuleiðis stuðlar útgáfa hennar að vönduðum og ábyrgum vinnubrögðum innan félagsins. Síldarvinnslan hefur yfir að ráða frábæru starfsfólki sem er sterkasta stoð félagsins. Í þessari skýrslu er lögð sérstök áhersla á okkar mannauð og viljum við veita innsýn í þau fjölbreytilegu störf sem starfsfólk fæst við frá degi til dags á starfsstöðvum okkar.

Síldarvinnslan vill vera í fararbroddi á sviði samfélagslegrar ábyrgðar, taka þátt í uppbyggingu þeirra samfélaga sem hún starfar í. Allt frá stofnun Síldarvinnslunnar árið 1957 hefur fyrirtækið verið kjölfestufyrirtæki í sjávarútvegi og því fylgir mikil ábyrgð sem við ætlum okkur að standa undir hér eftir sem hingað til. Hagsmunir samfélaga og fyrirtækja eiga að fara saman, þannig lítum við á það sem styrk að vinna með og styðja við þau öflugu samfélög þar sem við störfum“.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason forstjóri í síma 470 7000.

Viðhengi



EN
21/03/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025 Drög að stjórnendauppgjöri vegna ársins 2025 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA afkoma ársins nema um USD 113 - 115 milljónir sem er nokkuð hærri en fyrri afkomuspá sem gerði ráð fyrir EBITDA afkomu að fjárhæð USD 96 – 104 milljónir. Er í drögunum gert ráð fyrir að hagnaður félagsins eftir skatta verði að fjárhæð USD 62 – 64 milljónir. Helstu ástæður hærri afkomu má rekja til sterkari markaða en einnig gekk síldarvertíð vel í lok ársins og var umfram áætlanir. Vinna við endurskoðun ársuppgjörs er í gangi og því geta lykiltölur e...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt Síldarvinnslan hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í félaginu. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Samningurinn kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 15 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 30 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskipta...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði ársin...

Síldarvinnslan: Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði ársins 2025 Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel.Makrílsala hefur gengið vel og verð verið góð.Kolmunnaveiðar gengu vel í íslenskum sjó í haust.Veiðar á norsk-íslenskri síld gengu vel.Ísfiskskipin fiskuðu vel, sumarstopp notað í viðhald.Landvinnsla í Grindavík fór vel af stað eftir sumarstopp.Áfram góð verð á helstu bolfiskmörkuðum.Góð makrílvertíð hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic.Hafa verið áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður tímabilsins á þ...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2025 fimmtudaginn...

Síldarvinnslan hf. birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2025 fimmtudaginn 27. nóvember 2025 Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:15, og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á . Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum. Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á .

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch