SYN SYN

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á öðrum ársfjórðungi ársins 2025

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á öðrum ársfjórðungi ársins 2025

Rekstur í takt við áætlanir

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 25. ágúst 2025.

Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2025 námu 5.357 m.kr. samanborið við 5.286 m.kr. á sama tímabili 2024 og jukust um 1,4%. Tekjur af fjölmiðlun, interneti og farsímaþjónustu (án IoT) jukust um 3,4% á milli tímabila.

EBITDAaL nam 716 m.kr. á 2F, samanborið við 733 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Tap eftir skatta nam 174 m. kr. á 2F 2025 samanborið við 186 m.kr. tap á sama tímabili 2024.

EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 92 m.kr. á ársfjórðungnum samanborið við -432 m.kr. á sama tímabili í fyrra.

Rekstrarhagnaður (EBIT) á 2F nam 66 m.kr., samanborið við 63 m.kr. á fyrra ári.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

Árið hefur verið viðburðarríkt hjá Sýn og markað af tveimur stórum áföngum sem styrkja félagið bæði gagnvart viðskiptavinum og fjárfestum. Við höfum lokið endurmörkun vörumerkja félagsins undir einu merki og kynnt nýja pakka sem sameina fjarskipti og fjölmiðla á skýrari hátt en áður. Þessum breytingum hefur verið vel tekið og þær marka endapunkt á yfir 12 mánaða vinnu og undirbúningi sem fjöldi starfsfólks hefur komið að, með það að markmiði að gera vöruframboðið einfaldara og skýrara fyrir viðskiptavini.

Á sama tíma tókum við á móti Enska boltanum í sumar og hefur sú yfirfærsla gengið einstaklega vel. Við höfum séð gríðarlega góðar viðtökur viðskiptavina og styrk í dreifileiðum okkar. Við vinnum áfram að því að bæta upplifun viðskiptavina sem nýta sér öpp í snjallsjónvörpum svo þjónustan verði sem best. Sjónvarpsþjónusta Sýnar er öllum landsmönnum aðgengileg um internetið, óháð fjarskiptafyrirtæki.

Að okkar mati gengur ákvörðun Fjarskiptastofu gegn grundvallarreglum um samkeppni og jafnræði á markaði. Við teljum að með ákvörðuninni sé verið að draga úr hvata til þróunar á nýjum og hagkvæmari lausnum fyrir neytendur.

Góðum árangri hefur verið náð í því að auka hagræði í rekstri og fjárfestingar eru markvissari en áður. Þetta hefur skilað sér í bættum rekstrargrunni og meiri sveigjanleika til að halda áfram að þróa vörur og þjónustu.

Heildarniðurstaðan eftir fyrstu sex mánuði ársins er því jákvæð: rekstur er í takt við áætlanir, kjarnatekjur sýna vöxt og félagið stendur traustum fótum. Með skýrri sýn, einfaldara vöruframboði, sterku vörumerki, Enska boltanum og áframhaldandi skilvirkni í rekstri erum við vel í stakk búin til að skapa viðskiptavinum betri upplifun og hluthöfum virði til framtíðar.“

Fjárfestakynning verður birt fyrir fjárfestafund sem haldinn verður þriðjudaginn 26. ágúst kl. 08:30.  

Viðhengi



EN
25/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ...

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ehf. Eins og fram kom í fyrri kauphallartilkynningu  Sýnar hf. (hér eftir „félagið“ eða  Sýn hf.“) undirrituðu Nova hf. og Sýn hf. þann 30. október 2025 samstarfssamning, sem kvað meðal annars á um fyrirhugað framsal dreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850, og hluthafasamkomulag varðandi stjórnhætti Sendafélagsins ehf., ákvarðanatöku innan þess félags o.fl. Þá kom fram í fyrri kauphallartilkynningu að þann 12. nóvember 2025 undirrituðu félagið og Sendafélagið ehf. kaupsamning um sölu þes...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Sýn hf. mun halda aðalfundi og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:                                                                   Afkoma 4F og ársuppgjör 2025         26. febrúar 2026                                 Aðalfundur                                                     26. mars 2026                                 Afkoma 1F 2026                                         7. maí 2026                                 Afkoma 2F 2026                                         27. ágúst 2026                                ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025 Sýn hf. tilkynnir hér með um breytingu á Fjárhagsdagatali sem birt var þann 10.07.2025. Breytingin lýtur að afkomubirtingu vegna árshlutareiknings 4F og ársuppgjör 2025 og vegna Aðalfundar.                         Afkoma 4F og ársuppgjör 2024                                        20. febrúar 2025Aðalfundur                                                                        14. mars 2025Afkoma 1F 2025                                                                 7. maí 2025Afkoma 2F 2025                                                       ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn hf. fær samþykkta flýtimeðferð í máli gegn Fjarskiptastof...

Sýn hf.: Sýn hf. fær samþykkta flýtimeðferð í máli gegn Fjarskiptastofu og Símanum hf. Mikilvægum  áfanga náð Héraðsdómur Reykjavíkur hefur samþykkt flýtimeðferð í máli Sýnar hf. gegn Fjarskiptastofu og Símanum hf. Málið lýtur að kröfu Sýnar um ógildingu ákvörðunar Fjarskiptastofu nr. 8/2025 sem varðar flutningsréttarkröfu Símans á áskriftarstöðvum Sýnar. Sýn fagnar því að dómurinn hafi orðið við beiðni um flýtimeðferð enda er um verulega hagsmuni að ræða fyrir viðskiptavini og rekstur félagsins. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar hf. „Samþykki flýtimeðferðar er mikilvægur áfangi. ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn hf. og Sendafélagið ehf. undirrita kaupsamning um sölu á ...

Sýn hf.: Sýn hf. og Sendafélagið ehf. undirrita kaupsamning um sölu á RAN kerfi Sýnar. Sýn hf. (kt. 470905-1740) og Sendafélagið ehf. (kt. 440515-1850) hafa í dag undirritað kaupsamning um sölu þess fyrrnefnda á 4G og 5G dreifikerfi Sýnar (e. Radio Access Network eða RAN) til Sendafélagsins ehf. (kt. 440515-1850). Fyrir dreifikerfi Sýnar greiðir Sendafélagið um 963 m.kr., en samhliða kaupsamningi undirrituðu aðilar lánssamning þar sem Sýn veitir lán til Sendafélagsins í formi greiðslufrests á kaupverðinu. Í dag var einnig gengið frá kaupum Sendafélagsins á 4G og 5G búnaði Nova hf., en lík...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch