SYN SYN

Sýn hf.: Afkomuviðvörun. Einskiptisliðir og afskriftir tengdar rekstrarhagræðingu hafa neikvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjórðungs 2023 

Sýn hf.: Afkomuviðvörun. Einskiptisliðir og afskriftir tengdar rekstrarhagræðingu hafa neikvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjórðungs 2023 

 



Við vinnslu á samstæðuuppgjöri Sýnar hf. vegna ársins 2023 liggur fyrir að einskiptisliðir upp á um 840 m.kr., sem ákveðið hefur verið að gjaldfæra á árinu 2023, hafa afgerandi áhrif á afkomu ársins. EBIT afkoma ársins, fyrir utan hagnað vegna sölu stofnnetsins, verður undir áður útgefnu afkomubili, 2.200 – 2.500 m.kr. Skv. uppgjörsdrögum er EBIT afkoma ársins því um 1.108 m.kr. án hagnaðar vegna sölu á stofnneti upp á 2.436 m.kr. Leiðrétt fyrir einskiptisliðum er rekstrarafkoma félagsins á árinu 2023 um 1.948 m.kr. Félagið hafði áður gefið út að EBIT afkoma félagsins myndi vera við neðri mörk afkomubils.  

Af einskiptisliðum vega þyngst afskriftir sýningarrétta, afskriftir eigna hjá innviðum og kostnaður vegna starfsloka fráfarandi forstjóra, auk starfsloka annarra starfsmanna í tengslum við hagræðingaraðgerðir. 

Heildar EBIT afkoma ársins að meðtöldum hagnaði vegna sölu stofnnets er skv. uppgjörsdrögum um 3.544 m.kr. 

Ársuppgjör félagsins er enn í vinnslu, er óendurskoðað og getur tekið breytingum fram að birtingu. Uppgjör ársins 2023 verður birt eftir lokun markaða þann 27. febrúar 2024.



EN
13/02/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Ársuppgjör 2025 og fjárfestakynning

Sýn hf.: Ársuppgjör 2025 og fjárfestakynning Sýn hf. birtir uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar nk. Fjárfestafundur verður haldinn föstudaginn 27. febrúar 2026 kl. 08:30 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri, ásamt Eðvaldi Inga Gíslasyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Ekki verður boðið upp á streymi frá fundinum að þessu sinni, en hvatt er til þess að sem flestir mæti á staðinn. Einnig er tekið er á móti fyrirspurnum á

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalá...

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalána og bráðabirgðaniðurstöður Sýnar 2025 Vísað er til fyrri tilkynninga Sýnar hf. um sölu á 4G og 5G dreifikerfi félagsins til Sendafélagsins ehf., síðast dags. 31. desember 2025 þegar tilkynnt var um afhendingu eignanna. Sendafélagið ehf. hefur nú tryggt sér langtímafjármögnun hjá Landsbankanum hf. Í kjölfarið hefur Sendafélagið endurgreitt að stórum hluta hluthafalán sem Sýn hf. og Nova hf. veittu félaginu í tengslum við kaupin á dreifikerfinu. Endurgreiðsla hluthafalánsins er í samræmi við upphaflegar forsendur viðski...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Flöggun Arion banki hf.

Sýn hf.: Flöggun Arion banki hf. Sjá meðfylgjandi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ...

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ehf. Eins og fram kom í fyrri kauphallartilkynningu  Sýnar hf. (hér eftir „félagið“ eða  Sýn hf.“) undirrituðu Nova hf. og Sýn hf. þann 30. október 2025 samstarfssamning, sem kvað meðal annars á um fyrirhugað framsal dreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850, og hluthafasamkomulag varðandi stjórnhætti Sendafélagsins ehf., ákvarðanatöku innan þess félags o.fl. Þá kom fram í fyrri kauphallartilkynningu að þann 12. nóvember 2025 undirrituðu félagið og Sendafélagið ehf. kaupsamning um sölu þes...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Sýn hf. mun halda aðalfundi og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:                                                                   Afkoma 4F og ársuppgjör 2025         26. febrúar 2026                                 Aðalfundur                                                     26. mars 2026                                 Afkoma 1F 2026                                         7. maí 2026                                 Afkoma 2F 2026                                         27. ágúst 2026                                ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch