SYN SYN

Sýn hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn Sýnar hf.

Sýn hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn Sýnar hf.

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunar og rekstrar hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Í kjölfarið hefur verið ákveðið að fara í skipulagsbreytingar sem felast einkum í að svið Nýsköpunar og rekstrar verði lagt niður og verkefni sviðsins verði færð á aðra stjórnendur.

Herdís Dröfn Fjeldsted:

„Hulda hefur leitt  grundvallar breytingar á tækniumhverfi Sýnar og stýrt þróun á nýjum þjónustulausnum fyrir viðskiptavini Sýnar frá því hún hóf störf hjá félaginu í janúar 2023. Við þökkum Huldu fyrir mikilvægt framlag í þágu félagsins og óskum henni velfarnaðar.“

Hulda Hallgrímsdóttir:

„Sýn er frábært fyrirtæki á mikilli sóknar og breytingarvegferð þar sem ytra umhverfið er á stöðugri  hreyfingu. Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki eru að fara í gegnum stórar tæknibyltingar og á sama tíma í mjög harðri samkeppni í krefjandi rekstrarumhverfi, það á sérstaklega við hjá Sýn.  Á síðustu misserum hefur fyrirtækið gert róttækar breytingar á ferlum, tækni og skipulagi ásamt því að  kaupa ný fyrirtæki og selja frá sér innviði. Þessar breytingar eru liður í þeirri vegferð að styrkja helstu rekstrareiningar félagsins með það að markmiði að byggja undir tekjustoðir framtíðar. Ég er ákaflega stolt af þeim árangri sem hefur náðst ásamt starfsfólki félagsins sem er vakið og sofið yfir upplifun viðskiptavina. Ég óska félaginu alls hins besta og þakka kærlega fyrir samstarfið“.



EN
08/03/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025 Sýn hf. tilkynnir hér með um breytingu á Fjárhagsdagatali sem birt var þann 17.01.2025. Breytingin lýtur að afkomubirtingu vegna árshlutareiknings 2F 2025.                         Afkoma 4F og ársuppgjör 2024             20. febrúar 2025Aðalfundur                                             14. mars 2025Afkoma 1F 2025                                      7. maí 2025Afkoma 2F 2025                                   25. ágúst 2025Afkoma 3F 2025                                      5. nóvember 2025Afkoma 4F og ársuppgjör 2025             18. febrúar ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025 Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. maí 2025. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5.220 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 5.365 m.kr. á sama tímabili 2024 og dragast saman um 2,7%. Jákvæð þróun er hins vegar í kjarnastarfsemi fjarskipta, þar sem bæði tekjur og fjöldi viðskiptavina aukast á milli ársfjórðunga. Þá hafa tekjur af Stöð 2+ einnig aukist og fjöldi áskrifenda hefur aldrei verið meiri. Auglýsingatekjur lækkuðu um 110 m.kr. milli fyrs...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Uppsögn á samningi um viðskiptavakt

Sýn hf.: Uppsögn á samningi um viðskiptavakt Sýn hf. hefur sagt upp samningi sínum við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt og tekur uppsögnin gildi 18. apríl 2025. Sýn hf. mun áfram vera með samning við Landsbankann hf. um viðskiptavakt. 

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2025

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2025 Sjá viðhengi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Flöggun - SKEL fjárfestingafélag hf.

Sýn hf.: Flöggun - SKEL fjárfestingafélag hf. Sjá viðhengi: Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch