SYN SYN

Sýn hf.: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samkomulag um Sendafélag

Sýn hf.: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samkomulag um Sendafélag

Nova hf., kt. 531205-0810, og Sýn hf., kt. 470905-1740, hafa í dag undirritað samkomulag um helstu atriði fyrirhugaðra samninga um framsal farnetsdreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850.

Nova hf. og Sýn hf. eru einu hluthafarnir, í jöfnum hlutföllum, í Sendafélaginu ehf., sem var stofnað árið 2015. Sendafélagið ehf. hefur það hlutverk að reka dreifikerfi („RAN“ kerfi, e. Radio Access Network) aðilanna á landsvísu í þeim tilgangi að ná fram hagræðingu í rekstri og auka fjárfestingargetu í nýjum tæknilausnum.  Samkomulagið, sem nú hefur verið undirritað, er skref í átt að frekara samstarfi Nova hf. og Sýnar hf. í gegnum Sendafélagið ehf., svo sem ráð var fyrir gert í samningum aðila á árinu 2015, og Nova hf. og Sýn hf. hyggjast nú hrinda í framkvæmd ef endanlegir samningar nást milli aðilanna þar að lútandi. Þannig telja Nova hf. og Sýn hf. að unnt verði að reka RAN kerfi þeirra sem eitt sameiginlegt RAN kerfi, meðal annars á grundvelli þeirra efnisatriða, sem fram koma í samkomulaginu.

Samkvæmt samkomulaginu, sem undirritað var í dag, hafa Nova hf. og Sýn hf. ákveðið að vinna áfram að undirbúningi þess að framselja dreifikerfi sín – þar með talið allan 4G og 5G fjarskiptabúnað sem nú er í eigu aðilanna og tengist RAN kerfinu, þ.e. senda, loftnet, varaafl og annan tilheyrandi og sérhæfðan búnað – til Sendafélagsins ehf. sem endurgjald fyrir hlutafé í Sendafélaginu ehf. og með sölu til Sendafélagsins ehf. gegn greiðslufresti með hluthafaláni (eigendaláni).

Samkvæmt samkomulaginu, sem undirritað var í dag, hafa Nova hf. og Sýn hf. sett sér það markmið að ljúka gerð endanlegra samninga sín í milli og við Sendafélagið ehf. innan 10 vikna frá undirritun samkomulagsins. Í fyrirhuguðum samningum verður nánar kveðið á um framsal Nova hf. og Sýnar hf. á umræddum eignum inn í Sendafélagið ehf., eignarhlutföll aðila, þá þjónustu sem Sendafélagið ehf. mun veita þeim og á hvaða kjörum þjónustan verði veitt og önnur nauðsynleg atriði. Þá er fyrirhugað að aðilar muni gera með sér hluthafasamkomulag varðandi ýmis atriði tengd stjórnarháttum Sendafélagsins ehf., en samkvæmt samkomulaginu munu Nova hf. og Sýn hf. hafa jöfn yfirráð yfir Sendafélaginu ehf., þrátt fyrir að eignarhluföll verði  ekki jöfn.  

Samkomulagið, sem undirritað var í dag, skal falla niður við gerð endanlegs samstarfssamnings aðila um þau atriði sem samkomulagið tekur til, en skal þó í öllu falli falla niður í lok dags þann 31. desember 2025 hafi aðilar ekki gert með sér endanlegan samning á þeim tíma.

Áætluð fjárhagsleg áhrif á rekstur Sýnar á ársgrunni

Með framangreindu áætlar Sýn hf. að EBITDAaL muni lækka um 250 m.kr. árlega þar sem kostnaður Sýnar hf. vegna dreifikerfisins sem áður færðist í liðina afskriftir og fjármagnskostnað færist yfir í rekstrarkostnað, áætluð áhrif á EBIT er lækkun uppá um 30 m.kr. Samhliða gera áætlanir ráð fyrir að árlegar fjárfestingar Sýnar hf. muni lækka sem nemur um það bil 200 m.kr. Eftir að Sendafélagið ehf. hefur lokið endurfjármögnun og greitt upp hluthafalán er gert ráð fyrir að hreinar vaxtaberandi skuldir Sýnar hf. muni lækka um 960 m.kr. Fyrir liggur að að afkoma Sendafélagsins ehf. færist undir liðinn áhrif hlutdeildarfélaga á rekstrarreikningi Sýnar hf. Samkvæmt núverandi áætlunum verður heildarafkoma þess um 130 m.kr. á ársgrundvelli á fyrsta rekstrarári.

Félagið mun upplýsa um framvindu málsins í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu félagsins. 

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl félagsins í gegnum netfangið



EN
21/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samkomulag um Sendafélag

Sýn hf.: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samkomulag um Sendafélag Nova hf., kt. 531205-0810, og Sýn hf., kt. 470905-1740, hafa í dag undirritað samkomulag um helstu atriði fyrirhugaðra samninga um framsal farnetsdreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850. Nova hf. og Sýn hf. eru einu hluthafarnir, í jöfnum hlutföllum, í Sendafélaginu ehf., sem var stofnað árið 2015. Sendafélagið ehf. hefur það hlutverk að reka dreifikerfi („RAN“ kerfi, e. Radio Access Network) aðilanna á landsvísu í þeim tilgangi að ná fram hagræðingu í rekstri og auka fjárfestingargetu í nýju...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025 Sýn hf. tilkynnir hér með um breytingu á Fjárhagsdagatali sem birt var þann 17.01.2025. Breytingin lýtur að afkomubirtingu vegna árshlutareiknings 2F 2025.                         Afkoma 4F og ársuppgjör 2024             20. febrúar 2025Aðalfundur                                             14. mars 2025Afkoma 1F 2025                                      7. maí 2025Afkoma 2F 2025                                   25. ágúst 2025Afkoma 3F 2025                                      5. nóvember 2025Afkoma 4F og ársuppgjör 2025             18. febrúar ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025 Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. maí 2025. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5.220 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 5.365 m.kr. á sama tímabili 2024 og dragast saman um 2,7%. Jákvæð þróun er hins vegar í kjarnastarfsemi fjarskipta, þar sem bæði tekjur og fjöldi viðskiptavina aukast á milli ársfjórðunga. Þá hafa tekjur af Stöð 2+ einnig aukist og fjöldi áskrifenda hefur aldrei verið meiri. Auglýsingatekjur lækkuðu um 110 m.kr. milli fyrs...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Uppsögn á samningi um viðskiptavakt

Sýn hf.: Uppsögn á samningi um viðskiptavakt Sýn hf. hefur sagt upp samningi sínum við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt og tekur uppsögnin gildi 18. apríl 2025. Sýn hf. mun áfram vera með samning við Landsbankann hf. um viðskiptavakt. 

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2025

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2025 Sjá viðhengi: Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch