A1KBCM Eimskipafelag Islands hf

Eimskip gerir samninga um tvö ný gámaskip

Eimskip gerir samninga um tvö ný gámaskip

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. hefur samþykkt samninga um smíði á tveimur 2.280 gámaeininga skipum og leigu þeirra til tíu ára í gegnum ElbFeeder, sem er þýskt hlutdeildarfélag Eimskips. Ætlunin er að skipin muni þjóna vöruflutningum á milli Reykjavíkur og Rotterdam sem og Teesport í Bretlandi, núverandi Bláa leið félagsins. 

Á undanförnum árum hafa þarfir viðskiptavina í ferskvöruflutningum aukist verulega með vaxandi útflutningi á ferskum sjávarafurðum og eldislaxi sem og innflutningi á ferskum matvælum. Þá er frekari vöxtur fyrirsjáanlegur í ferskvöruútflutningi í tengslum við mikla uppbyggingu í landeldi hér á landi. Nýju skipin verða umtalsvert stærri en þau skip sem nú sinna þessari þjónustu sem byggir undir frekari vöxt í þessum flutningum sem og  í Trans-Atlantic flutningum, sem eru burðarstoð í þjónustu félagsins á milli Íslands og Norður-Ameríku.

ElbFeeder, í meirihlutaeigu þýska skiparekstrarfélagsins Ernst Russ sem er skráð í kauphöllina í Frankfurt, hefur samið um smíði skipanna við skipasmíðastöðina China Merchants Jin Ling Shipyard (Nanjing) Co. Ltd. Samhliða hefur Eimskip gert leigusamning á skipunum til tíu ára eins og áður kom fram. Gert er ráð fyrir að skipin verði afhent seinni hluta árs 2028.

Skipin verða sérstaklega hönnuð með þjónustuþarfir viðskiptavina í huga og áhersla er lögð á hraðskeið og áreiðanleg skip með mikla stjórnhæfni, sem henta í þeim aðstæðum sem félagið starfar í á Norður-Atlantshafi.  Skipin verða 2.280 gámaeiningar að stærð, 185 metra löng og 29,4 metra breið og verða stærstu skip í rekstri félagsins frá upphafi. Til samanburðar eru Brúarfoss og Dettifoss, nýjustu skip í flota Eimskips, 2.150 gámaeiningar að stærð.  

Auk þess að vera hönnuð til að mæta þörfum um siglingahraða á hagkvæman hátt þá er einnig lögð áhersla á sem hagkvæmustu orkunýtingu, meðal annars í  hönnun á skipskrokki, sílikonhúðun á botni, raftengibúnaði í höfnum og við val á öðrum búnaði. Þá munu skipin styðja við væntanleg orkuskipti, þar sem stigin eru mikilvæg skref í hönnun og smíði til að undirbúa þau fyrir aðra orkugjafa, metanól eða LNG, í takt við umhverfistefnu félagsins

ElbFeeder á í dag sjö gámaskip og hefur rekstur félagsins verið sterkur á undanförnum árum. Félagið er vel í stakk búið að fjárfesta í nýjum skipum og verða nýsmíðarnar að fullu fjármagnaðar í gegnum ElbFeeder. Áætluð leiguskuldbinding Eimskips vegna 10 ára leigusamnings við ElbFeeder mun nema um 86 milljónum dollara og koma fram í efnahagsreikningi félagsins árið 2028 en á móti mun leiguskuldbinding vegna núverandi leiguskipa á Bláu leiðinni detta út.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips:

„Það er mjög ánægjulegt að stíga þetta mikilvæga skref í endurnýjun skipaflotans. Við sjáum mikil tækifæri með tilkomu nýju skipanna, sérstaklega þegar horft er til þeirra metnaðarfullu áforma sem snúa að auknum útflutningi á ferskum sjávarafurðum og laxi.  Þá höfum við á undanförnum árum séð mikinn þrótt í Trans-Atlantic flutningum félagsins frá Evrópu til Norður-Ameríku, sem er meginforsenda vikulegra siglinga milli Íslands og Norður-Ameríku, og munu nýju skipin styðja við frekari vöxt á þeirri þjónustu.  

Við erum stolt af því að í hönnun skipanna verður lögð mikil áhersla á þjónustu við viðskiptavini, hagkvæman rekstur og áreiðanleika. Hönnunin skapar einnig tækifæri á að skipta yfir í aðra orkugjafa þegar þeir verða aðgengilegir og raunverulegur valkostur, sem styður við umhverfisvegferð félagsins.

Það góða samstarf og traust sem við höfum átt við meðeigendur okkar í  ElbFeeder frá upphafi,  Ernst Russ í Þýskalandi, endurspeglast í þessari jákvæðu niðurstöðu og styrkir áframhaldandi samstarf.“

Joseph Schuchmann, framkvæmdastjóri Ernst Russ:

Þessi fjárfesting markar tímamót fyrir Ernst Russ þar sem um er að ræða fyrstu nýsmíða fjárfestingu okkar í langan tíma. Við erum mjög ánægð að geta hrint henni í framkvæmd í samstarfi við Eimskip, samstarfsaðila til margra ára, sem mun einnig gegna hlutverki sem langtíma leigutaki og með því tryggja fjárhagslega burði verkefnisins.“ 

Nánari upplýsingar veitir:

Harpa Hödd Sigurðardóttir

Framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs

Sími: 825 7379, netfang:

Guðbjörg Birna Björnsdóttir

Forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla

Sími: 844 4752, netfang:

Viðhengi



EN
04/09/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eimskipafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Eimskip: Results of buybacks of own shares through reverse auction

Eimskip: Results of buybacks of own shares through reverse auction No offers were received in the reverse auction buyback, and therefore the company will initiate standard share buyback in accordance with the buyback program. The number of shares to be acquired under the buy-back program will be up to 2,250,000, at a total purchase price which may not exceed ISK 750,000,000. The execution of the buy-back program must comply with the Act on Public Limited Companies, No. 2/1995. In addition, the buy-back program will be implemented in accordance with Regulation (EU) No. 596/2014 on market a...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Niðurstaða endurkaupa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Eimskip: Niðurstaða endurkaupa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi Engin tilboð bárust í endurkaup með öfugu tilboðsfyrirkomulagi og því mun félagið hefja hefðbundin endurkaup samkvæmt endurkaupaáætlun. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.250.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei hærri en 750 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Share buy-back program initiated

Eimskip: Share buy-back program initiated At the Annual General Meeting of Eimskip on 27 March 2025, the shareholders approved to authorize the Board of Directors to buy up to 10% of issued shares in the company. The authorization is valid for a term of 18 months from the Annual General Meeting. The Board of Directors of Eimskip decided today to initiate a new share buy-back program, in accordance with the approval, with the main purpose of reducing the company’s share capital and/or to fulfil the Company’s obligations in accordance with the stock option plan of the company. The number ...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

Eimskip: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Eimskipafélags Íslands hf. þann 27. mars 2025 var samþykkt að veita stjórn endurnýjaða  heimild til að eignast á næstu 18 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins.Stjórn Eimskips hefur í dag á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða að uppfylla skuldbindingar á grundvelli félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.250.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei hærri en 750 mi...

 PRESS RELEASE

Eimskip signs agreement for two new container vessels

Eimskip signs agreement for two new container vessels The Board of Directors of Eimskipafélag Íslands hf. has approved newbuild contracts for two 2,280 TEU container vessels and a ten-year time-charter through ElbFeeder, a German affiliate of Eimskip. The vessels are intended to provide transportation services between Reykjavík, Iceland and Rotterdam, as well as Teesport in the UK, the Company’s current Blue Line. In recent years, customer demand for transportation of fresh cargo has grown significantly, driven by increased exports of fresh seafood and farmed salmon, as well as imports of ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch