ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech fundar með fjárfestum á heilbrigðisráðstefnu BofA Securities í Las Vegas og situr fyrir svörum

Alvotech fundar með fjárfestum á heilbrigðisráðstefnu BofA Securities í Las Vegas og situr fyrir svörum

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu BofA Securities í Las Vegas, Nevada sem haldin verður í dagana 13.–15. maí nk. Fulltrúar félagsins funda með fjárfestum og sitja fyrir svörum hjá greinanda bankans á heilbrigðissviði, miðvikudaginn 14. maí nk. kl. 15:40–16:10.

Hægt verður að hlýða á hljóðupptöku af samtalinu við greinanda BofA Securities í beinu streymi. Þá verður upptaka aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur. Upplýsingar um hvernig tengjast má streyminu eða hlýða á upptökuna er að finna á slóðinni:

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja--Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norðu- Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Meiri upplýsingar er að finna á , , og almennri . Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: , , og

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
09/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces the Outcome of the Offering in Connection with the ...

Alvotech Announces the Outcome of the Offering in Connection with the Company’s Listing on Nasdaq Stockholm Not to be released, published, distributed or circulated in any jurisdiction in which it would be unlawful to do so. This press release is for information purposes only and does not constitute an offer to sell or a solicitation of an offer to buy any securities. REYKJAVIK, ICELAND AND STOCKHOLM, SWEDEN (May 16, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today...

 PRESS RELEASE

Alvotech tilkynnir niðurstöðu útboðs í tengslum við skráningu félagsin...

Alvotech tilkynnir niðurstöðu útboðs í tengslum við skráningu félagsins á Nasdaq markaðinn í Stokkhólmi Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag um niðurstöðu útboðs á sænskum heimildarskírteinum (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa, í tengslum við væntanlega skráningu félagsins á Nasdaq markaðinn í Stokkhólmi. Sterkur áhugi var meðal almennra fjárfesta á útboðinu og var eftirspurn margföld á við framboð. Meira en 3.000 nýir hluthafar eignast nú hlut í Alvotech. Viðskipti með bréf Alvotech á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi hefjast mánudaginn 19. maí nk. undir auðkenninu „ALVO SDB“. Útboðið náði a...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached is a copy of a filing with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons, announcing the acquisition of 19,988 shares in Alvotech at USD 10.18 per share, by Richard Davies, Deputy Chairman of the Board of Directors Alvotech. The transaction is dated May 14, 2025. Attachment

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi er tilkynning um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem send var inn til fjármálaeftirlits Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF), varðandi kaup Richards Davies, varaformanns stjórnar Alvotech á 19.988 hlutum í Alvotech á genginu 10,18 Bandaríkjadalir á hlut. Viðskiptin eru dagsett miðvikudaginn 14. maí sl.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Leiðrétting: Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi er tilkynning um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lögð var inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF), um kaup Alvogen Lux Holdings S.ár.l. á 210,000 hlutum í Alvotech á genginu 1.277,38 krónur á hlut. Alvogen Lux Holdings er annar stærsti hluthafi Alvotech. Stærstu hluthafar Alvogen Lux Holdings eru fjárfestingasjóðirnir CVC (40%), Aztiq (30%) og Temasek (20%). (Leiðréttingin varðar fjölda keyptra hluta, sem voru sagðir 201,000 í upprunalegu ís...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch