Alvotech heldur kynningarfund fyrir fjárfesta 27. mars 2025, eftir birtingu uppgjörs fyrir árið 2024 og fjórða ársfjórðung
Alvotech (NASDAQ: ALVO) birtir uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2024 og ársuppgjör 2024 miðvikudaginn 26. mars nk. eftir lokun markaða. Uppgjörsfundur með greinendum, sem sendur er út í beinum streymi, hefst kl. 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 27. mars nk. Þá verður boðið upp á sérstakan kynningarfund fyrir innlenda fjárfesta sem hefst kl. 16:00, fimmtudaginn 27. mars nk., í aðalstöðvum Alvotech við Sæmundargötu 15-19. Á kynningarfundinum mun Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech fjalla um rekstur og afkomuspá félagsins.
Gestir sem hyggjast mæta á kynningarfundinum í Sæmundargötu 27. mars nk. kl. 16:00 eða vilja fylgjast með í beinu streymi eru beðnir um að skrá þátttöku hér:
Streymi og upptaka af uppgjörsfundi með greinendum, sem hefst 27. mars nk. kl. 12:00, er einnig í boði. Nánari upplýsingar um skráningu má finna hér:
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Tvær hliðstæður, við líftæknilyfið Humira (adalimumab) annarsvegar og Stelara (ustekinumab) hinsvegar, eru þegar á markaði eða hafa hlotið markaðsleyfi í fjölda landa um allan heim. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).
Meiri upplýsingar er að finna á , , og almennri . Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: , , og
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
