ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kaupir alla starfsemi Ivers-Lee Grou

Alvotech kaupir alla starfsemi Ivers-Lee Grou

  • Ivers-Lee er rótgróið fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar í Sviss og útibú í Þýskalandi

  • Með kaupunum býr Alvotech sig undir mikinn vöxt eftirspurnar og eykur afköst í samsetningu og pökkun

REYKJAVIK OG BURGDORF Í SVISS (9. JÚLÍ 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefur keypt allan rekstur og aðstöðu Ivers-Lee, sem er með höfuðstöðvar í Burgdorf í Sviss. Ivers-Lee sérhæfir sig í þjónustu við lyfjaiðnaðinn og hefur áratugareynslu af hágæðasamsetningu og -pökkun lyfja. Fyrirtækið verður framvegis rekið sem deild innan framleiðslusviðs Alvotech. Með kaupunum býr Alvotech sig undir mikinn vöxt eftirspurnar ásamt því að auka afköst í framleiðslu og sveigjanleika.

„Ivers-Lee hefur veitt Alvotech mikilvæga þjónustu undanfarin ár. Stjórnendur fyrirtækjanna þekkjast því orðið vel eftir náið og farsælt samstarf. Við erum að búa okkur undir að setja þrjár nýjar hliðstæður á markað seinni part ársins og sala fer vaxandi á mörkuðum okkar um allan heim. Með því að samþætta rekstur Ivers-Lee og framleiðslusviðs Alvotech getum við brugðist hraðar við vexti eftirspurnar. Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum okkar ávallt hámarksgæði og afburðaþjónustu,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

Ivers-Lee er rótgróið fjölskyldufyrirtæki stofnað í Burgdorf í Sviss árið 1947. Fyrirtækið hefur frá stofnun séð um pökkun fyrir fjölmörg stærstu lyfjafyrirtæki heims. Ivers-Lee starfrækir einnig útibú í Lörrach í Þýskalandi. Framkvæmdastjóri Ivers-Lee, Peter Schüpbach, alnafni og barnabarn stofnanda félagsins, mun halda áfram að stýra rekstrinum og verður hluti af stjórnendateymi framleiðslusviðs Alvotech.

„Alvotech veitir Ivers-Lee aukinn fjárhagslegan styrk og tækifæri til að þróast á vaxandi markaði. Breytingin mun leiða til aukins stöðugleika fyrir starfsfólk og rekstur félagsins,“ sagði Peter Schüpbach.

Framleiðslueiningin í Burgdorf er með alþjóðlega GMP-vottun fyrir lyfjaframleiðslu og framleiðsluleyfi fyrir Bandaríkjamarkað frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA). Meðal þeirrar þjónustu sem Ivers-Lee hefur veitt Alvotech er pökkun fullbúinna vara og samsetning á lyfjapennum og áfylltum sprautum. Ivers-Lee hefur unnið fyrir breiðan hóp viðskiptavina og mun halda áfram að sinna margvíslegum verkefnum fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd. (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja-Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indónesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Mið-Austurlönd og Norður-Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA, Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar er að finna á , og almennri . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson forstöðumaður



EN
09/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch