ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöðu virknirannsóknar á AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöðu virknirannsóknar á AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva

  • Jákvæðar niðurstöður rannsóknarinnar sýna sambærilega klíníska virkni AVT03 og samanburðarlyfsins Prolia (denosumab) í sjúklingum
  • Endapunktur var einnig uppfylltur í tveimur klínískum rannsóknum þar sem borin voru saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleiki AVT03 og Prolia annars vegar og Xgeva hins vegar
  • Alvotech hyggst sækja um markaðsleyfi fyrir AVT03 á helstu mörkuðum síðar á árinu

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag jákvæðar niðurstöður virknirannsóknar á AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia (denosumab) og Xgeva (denosumab). Báðir aðalendapunktar rannsóknarinnar voru uppfylltir. Markmið rannsóknarinnar var að sýna fram á sambærilega klíníska virkni, öryggi, ónæmingarverkun og lyfjahvörf AVT03 og Prolia í konum með beinþynningu sem lokið hafa breytingaskeiði. Niðurstöður rannsóknarinnar munu einnig nýtast til að sækja um markaðsleyfi fyrir AVT03 sem líftæknilyfjahliðstæða við Xgeva.

“Við erum afar ánægð með þessar niðurstöður, sem staðfesta sambærilega klíníska virkni AVT03 og samanburðarlyfsins. Þá höfum við einnig fengið jákvæða niðurstöðu úr tveimur rannsóknum á lyfjahvörfum, sem sýna sambærileg lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia annars vegar  og Xgeva hins vegar. Hraður framgangur í klínískum verkefnum undanfarna mánuði undirstrikar kosti sérhæfingar félagsins og aukna fjölbreytni lyfja sem við erum með í þróun. Við munum sækja um markaðsleyfi fyrir AVT03 á öllum helstu mörkuðum síðar á þessu ári,” sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rannsókna hjá Alvotech.

Prolia (denosumab) er líftæknilyf til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Xgeva, sem inniheldur einnig denosumab í öðru lyfjaformi, er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum. Það er einnig gefið til meðferðar við risafrumuæxli í beinum.

er fjölsetra, tvíblinduð, slembiröðuð rannsókn til að bera saman klíníska virkni, öryggi, ónæmingarverkun og lyfjahvörf AVT03 og viðmiðunarlyfsins Prolia í sjúklingum. Þátttakendur í rannsókninni voru um það bil 532 konur sem greinst hafa með beinþynningu, náð hafa 50 ára aldri og eru komnar af breytingaskeiði. Slembival réði því hvort viðkomandi fékk skammta af AVT03 eða viðmiðunarlyfinu. Hver þátttakandi fær alls þrjá skammta af öðru hvoru lyfinu, með sex mánaða millibili. Þá var slembival notað fyrir þátttakendurna sem fengu Prolia, sem réði því hvort þriðji skammturinn væri AVT03 eða Prolia. Endapunktar fyrir mat á klínískri virkni voru breyting á beinmassa fyrir og eftir meðferð og gildi efnis í blóði sem er merki um endurupptöku beina. Rannsókn á hverjum sjúklingi lýkur eftir 12 mánuði, en öllum þátttakendum verður fylgt eftir fram að lokaskoðun eftir 18 mánuði frá fyrstu lyfjagjöf.

rannsóknin bar saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia í 209 heilbrigðum og fullorðnum þátttakendum. rannsóknin bar saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Xgeva í 208 heilbrigðum og fullorðnum þátttakendum. Endapunktar beggja rannsóknanna voru uppfylltir.

Um AVT03 (denosumab)

AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva (denosumab). Denosumab beinist að og binst með mikilli sækni og sértækni við RANKL og kemur í veg fyrir virkjun viðtaka hans, svokallað RANK. Fyrirbygging RANKL/RANK tengingarinnar minnkar endurupptöku beina og beineyðingu af völdum krabbameins [1]. AVT03 er líftæknilyfjahliðstæða í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

[1]

Notkun vörumerkja

Prolia og Xgeva eru skráð vörumerki Amgen Inc.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
02/07/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch