ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech og Advanz Pharma fá markaðsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir Gobivaz, fyrstu hliðstæðuna við Simponi

Alvotech og Advanz Pharma fá markaðsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir Gobivaz, fyrstu hliðstæðuna við Simponi

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að hliðstæðan við Simponi (golimumab) hefði hlotið markaðsleyfi á Evrópska efnhagssvæðinu. Samstarfsaðili Alvotech við markaðssetningu hliðstæðunnar í Evrópu er Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum.

Markaðsleyfið er veitt af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, eftir að Mannalyfjanefnd Lyfjastofnunar Evrópu hafði mælt með útgáfu þess, fyrir fjórar útgáfur af lyfinu, 50 mg/0.5 mL og 100 mg/mL, í áfylltri sprautu og lyfjapenna, til meðferðar fullorðinna við liðagigt, sóraliðagigt, hrygggigt og sáraristilbólgu og sjálfvakinni liðabólgu í börnum.

„Þetta er önnur hliðstæðan sem við höfum verið að þróa með Advanz Pharma sem hlýtur markaðsleyfi og styrkir það enn frekar stöðu okkar á markaði í Evrópu. Gobivaz er fyrsta hliðstæðan við Simponi sem fær markaðsleyfi. Þannig bætum við aðgengi fólks með langvinna bólgusjúkdóma að hágæða líftæknilyfjum og lækkum lyfjakostnað heilbrigðiskerfa í Evrópu,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

„Við fögnum markaðsleyfinu fyrir Gobivaz, sem er mikilvægur áfangi í samstarfi okkar við Alvotech. Að auka aðgengi að hágæða líftæknilyfjum er eitt helsta markmið Advanz Pharma og markaðsleyfið mun gera okkur kleift að bjóða sjúklingum um alla Evrópu nýjan og mikilvægan kost í meðferð ónæmissjúkdóma,“ sagði Steffen Wagner, forstjóri Advanz Pharma.

Alvotech sér um þróun og framleiðslu Gobivaz, en Advanz Pharma um skráningu lyfsins og fer með einkarétt til markaðssetningar þess í Evrópu.

Markaðsleyfið fyrir Gobivaz byggir á gögnum úr forklínískum og klínískum rannsóknum. Í apríl 2024 tilkynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður klínískrar rannsóknar til að staðfesta sambærilega klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT05 og Simponi, í sjúklingum með miðlungs og alvarlega liðagigt. Í nóvember 2023 kynnti Alvotech jákvæða niðurstöðu rannsóknar á lyfjahvörfum sem bar saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT05 og Simponi í heilbrigðum fullorðnum einstaklingum.

Um AVT05

AVT05 (golimumab) er hliðstæða við Simponi® og hefur fengið markaðsleyfi undir vörumerkinu Golimumab BS í Japan og Gobivaz á Evrópska efnahagssvæðinu og í Bretlandi. Umsóknir um markaðsleyfi liggja fyrir í fleiri löndum. Golimumab er einstofna mótefni sem hamlar frumuboðefninu tumor necrosis factor alpha (TNF alpha). Aukið magn TNF alpha er talið geta verið orsakaþáttur í þrálátum bólgusjúkdómum, s.s. liðagigt, sóraliðagigt og hrygggigt. [1].

Heimildir

[1]

Notkun vörumerkja

Simponi er skráð vörumerki Johnson & Johnson. Gobivaz er skráð vörumerki Advanz Pharma.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd. (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja-Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indónesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Mið-Austurlönd og Norður-Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA, Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar er að finna á , á og á . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
20/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech files Annual Report with the SEC

Alvotech files Annual Report with the SEC REYKJAVIK, ICELAND (March 30, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has filed its Annual Report 2025 on Form 20-F for the financial year 2025 with the U.S. Securities and Exchange Commission (SEC), incorporating by reference parts of the Alvotech Annual Report 2025. The report is available on the SEC’s website, , as well as in the investor relations section of Alvotech’s website at . For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefansson (IS) About Al...

 PRESS RELEASE

Alvotech birtir ársreikning á eyðublaði 20-F

Alvotech birtir ársreikning á eyðublaði 20-F REYKJAVIK (30. mars 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði birt ársreikning fyrir fjárhagsárið 2025 á eyðublaði 20-F í samræmi við reglur Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC). Skjalið verður aðgengilegt á vefsíðu SEC og fjárfestasíðu Alvotech . Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði...

 PRESS RELEASE

Alvotech Publishes 2025 Annual Report

Alvotech Publishes 2025 Annual Report REYKJAVIK, ICELAND (March 30, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has published its Annual Report for 2025. The report is available in the investor relations section of Alvotech’s website at: and is attached to this announcement in PDF and iXBRL formats. For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefansson (IS) About AlvotechAlvotech is a biotechnology company, founded by Robert Wessman, focused solely on the development and manufacture of biosimilar...

 PRESS RELEASE

Alvotech birtir ársskýrslu fyrir árið 2025

Alvotech birtir ársskýrslu fyrir árið 2025 REYKJAVIK (30. mars 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði birt ársskýrslu fyrir árið 2025. Skýrslan er aðgengileg á fjárfestasíðu Alvotech  og fylgir í viðhengi með þessari tilkynningu á PDF-sniði og töguðu sniði samkvæmt iXBRL staðli. Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þr...

 PRESS RELEASE

Alvotech Files Annual Report with the SEC

Alvotech Files Annual Report with the SEC REYKJAVIK, Iceland, March 30, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”) has filed its Annual Report 2025 on Form 20-F for the financial year 2025 with the U.S. Securities and Exchange Commission (SEC), incorporating by reference parts of the Alvotech Annual Report 2025. The report is available on the SEC’s website, , as well as in the investor relations section of Alvotech’s website at . For further information, contact: MediaBenedikt StefanssonSarah MacLeod InvestorsDr. Balaji V Prasad (US)Patrik Ling (SE)Benedikt Stefan...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch