ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech skipar Lindu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs

Alvotech skipar Lindu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs

REYKJAVÍK (10. JÚLÍ 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefur skipað Lindu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Linda er reyndur alþjóðlegur stjórnandi á sviði rekstrar og fjármála. Hún hefur áður gegnt leiðtogastöðum fyrirtækja á sviði iðnaðar, fjármála, flutningastarfsemi og heilbrigðismála. Joel Morales sem verið hefur framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech frá árinu 2020 hefur ákveðið að láta af störfum til þess að geta varið meiri tíma með fjölskyldunni og á heimaslóðum í Bandaríkjunum. Hann verður félaginu áfram til ráðgjafar og til halds og trausts við yfirfærslu verkefna á komandi vikum.

Linda gegndi ábyrgðarstöðum fyrir Marel í 15 ár, þar á meðal sem forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Hún lét af störfum þar á síðasta ári. Linda er stjórnarformaður Íslandsbanka, sat áður í stjórn Viðskiptaráðs, Framtakssjóðsins og starfaði hjá Sidekick Health, Eimskip, Burðarási og Straumi fjárfestingabanka.

„Ég vil bjóða Lindu hjartanlega velkomna í framkvæmdastjórn Alvotech. Hún er með mikla leiðtogareynslu og hefur þegar stýrt fjármálum og rekstri félags með tvískráningu á hlutabréfamörkuðum. Við fögnum því að fá Lindu til liðs við okkur til að taka þátt í þeim mikla vexti sem fram undan er hjá Alvotech,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri. „Fyrir hönd Alvotech vil ég færa Joel innilegar þakkir fyrir framlag hans til félagsins undanfarin ár. Á þessu tímabili breyttist Alvotech úr óskráðu í skráð félag, byrjaði að skila hagnaði og er nú á góðri leið með að verða leiðandi fyrirtæki alþjóðlega í rannsóknum, þróun, framleiðslu og markaðssetningu á líftæknilyfjahliðstæðum.“

„Það er mér mikil ánægja að ganga til liðs við Alvotech sem er einstakt fyrirtæki á Íslandi og leiðandi í sínum geira alþjóðlega. Það hefur verið gaman að fylgjast með magnaðri uppbyggingu undanfarin ár og fram undan eru ekki síður spennandi tímar. Ég er full tilhlökkunar að kynnast nýju samstarfsfólki og vinna með þessu einvala liði að vexti og viðgangi félagsins,“ sagði Linda Jónsdóttir.

„Ég vil þakka öllum samstarfsfélögum mínum og ekki síst Róberti fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu mikla ævintýri. Við höfum náð frábærum árangri og Alvotech er vel í stakk búið fyrir framtíðarvöxt. Ég hlakka til þess að halda áfram að aðstoða félagið, færa verkefnin á nýjar hendur og undirbúa uppgjörsfundinn í næsta mánuði. Að sjálfsögðu verð ég áfram einarður stuðningsmaður og stoltur hluthafi í Alvotech,“ sagði Joel Morales.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd. (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja-Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indónesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Mið-Austurlönd og Norður-Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA, Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar er að finna á , á og á . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson forstöðumaður

Viðhengi



EN
10/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First H...

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First Half of 2025 on August 14, 2025, at 8:00 am EDT REYKJAVIK, ICELAND (August 6, 2025) – Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specialized in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today that it will release financial results for the first half of the year ended June 30, 2025, after U.S. markets close on Wednesday, August 13, 2025.  Alvotech will also conduct a conference call to present the financial results and recent business highlights on Thursday August 14, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. ...

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. kl. 12 á hádegi REYKJAVÍK (6. ágúst 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun senda út tilkynningu með uppgjöri fyrir fyrri helming ársins 2025 eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 13. ágúst nk. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst hann kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 14. ágúst nk. Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, , á slóðinni . Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengil...

 PRESS RELEASE

Inbjudan til Alvotech presentation av bokslutskommunikén och rapporten...

Inbjudan til Alvotech presentation av bokslutskommunikén och rapporten för första halvåret 2025 REYKJAVIK, ISLAND (6 AUGUSTI, 2025) – Alvotech (NASDAQ:ALVO SDB), ett globalt biofarmaceutiskt företag som specialiserar sig på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel för patienter över hela världen, publicerar bokslutskommunikén för första halvåret som slutade den 30 juni 2025 den 13 augusti 2025 efter att de amerikanska marknaderna stängt. Resultaten presenteras i en webcast och telefonkonferens klockan 14:00 CET (8:00 AM EDT) den 14 augusti 2025. Presentationen hålls på engelsk...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First H...

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First Half of 2025 on August 14, 2025, at 8:00 am EDT REYKJAVIK, Iceland, Aug. 06, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specialized in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today that it will release financial results for the first half of the year ended June 30, 2025, after U.S. markets close on Wednesday, August 13, 2025. Alvotech will also conduct a conference call to present the financial results and recent business highlights on Thu...

 PRESS RELEASE

Alvotech Appoints Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer

Alvotech Appoints Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer REYKJAVIK, ICELAND (July 10, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced the appointment of Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer (CFO). Linda is a highly experienced international executive with a strong background in finance and corporate leadership. She has held senior roles across a range of industries, including banking, food technology, transportation, and healthcare. Linda will be based in Ice...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch