FESTI N1 Hf

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Festi hf., sem haldinn var 5. mars 2025, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Tilgangur félagsins með endurkaupum er að lækka hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar skv. kaupréttarsamningum við starfsfólk.

Stjórn Festi hf. hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar.  Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 825 milljónir króna að kaupverði.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags skulu að hámarki nema annað hvort a) 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í félaginu á Nasdaq Iceland undangengna 20 daga eða b) 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í félaginu á Nasdaq Iceland í nóvember 2025, en þó þannig að keypt magn hvers viðskiptadags fari ekki umfram 100.000 hluti. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.

Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist fimmtudaginn 4. desember 2025 og standi fram til 4. mars 2026, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

ACRO verðbréf hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Festi á 2.746.226 hluti, eða sem nemur 0,88% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().



EN
03/12/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 9

Festi hf.: Buyback program week 9 In week 9 2026, Festi purchased in total 185,000 own shares for total amount of 63,790,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 923.2.202611:04                 35.000343,00       12.005.000Week 924.2.202613:10                 35.000345,00       12.075.000Week 925.2.202614:19                 35.000347,00       12.145.000Week 926.2.202613:39                 35.000344,00       12.040.000Week 927.2.202612:54                 45.000345,00       15.525.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Pu...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Endurkaup vika 9

Festi hf.: Endurkaup vika 9 Í 9. viku 2026 keypti Festi alls 185.000 eigin hluti fyrir 63.790.000 kr. eins og hér segir: VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverðVika 923.2.202611:04                 35.000343,00       12.005.000Vika 924.2.202613:10                 35.000345,00       12.075.000Vika 925.2.202614:19                 35.000347,00       12.145.000Vika 926.2.202613:39                 35.000344,00       12.040.000Vika 927.2.202612:54                 45.000345,00       15.525.000 Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþings...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026 - final agenda, propos...

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026 - final agenda, proposals and candidates for the Board of Directors. The Annual General Meeting of Festi hf. will be held on Thursday, March 5, 2026, at 10:00 a.m. at the Company's headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. No changes have been made to the agenda and proposals that were published with the meeting notice on February 10, 2026. No further proposals were received from shareholders regarding the appointment of committee members to the Company’s Nomination Committee. The deadline for submitting candidacies for the Board of Direc...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Aðalfundur 5. mars 2026 - endanleg dagskrá, tillögur og fra...

Festi hf.: Aðalfundur 5. mars 2026 - endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar. Aðalfundur Festi hf. verður haldinn fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14, Kópavogi. Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru með fundarboði þann 10. febrúar sl. Ekki bárust frekari tillögur frá hluthöfum að skipan nefndarmanna í tilnefningarnefnd félagsins. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs sem fram mun fara á fundinum er liðinn. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Edda BlumensteinGuðjón Auðuns...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Endurkaup vika 8

Festi hf.: Endurkaup vika 8 Í 8. viku 2026 keypti Festi alls 195.000 eigin hluti fyrir 65.645.000 kr. eins og hér segir: VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverðVika 816.2.202613:17           75.000333,00    24.975.000Vika 817.2.202614:12           50.000336,00    16.800.000Vika 818.2.202611:49           35.000342,00    11.970.000Vika 819.2.202612:40           35.000340,00    11.900.000 Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/10...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch